Hvetja stjórnvöld til að hafna frumvarpi um afnám banns við klámi Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 7. desember 2022 22:42 Í umsögn félagsins er bent á að rannsóknir hafi sýnt fram á hvernig kynferðisleg áreitni og misnotkun byggð á klámi getur tengst vændi og mansali. Kvenréttindafélag Íslands er ósammála því að öll refsiheimild er tengist klámi verði afnumin og hvetur stjórnvöld því til þess að hafna nýlegu frumvarpi. Félagið hvetur stjórnvöld til þess að hafna þessu frumvarpi og setja fjármagn bæði í rannsóknir og greiningarvinnu á klámi, sem og til þess að styðja við þolendur klámiðnaðarins.
Með umræddu frumvarpi er lagt til að felld verði út refsiheimild 210. gr. almennra hegningarlaga vegna birtingar kláms á prenti, innflutnings þess í útbreiðsluskyni, sölu, útbýtingar eða annars konar dreifingar þess. Með annars kemur fram í frumvarpinu að íslensk lög um klám staðið að mestu leyti óbreytt í um 153 ár. Á sama tíma hafa viðhorf til kynlífs gjörbreyst, öll umræða um kynlíf, kynhegðun og kynfrelsi hefur opnast upp á gátt, á sama tíma og bylting í upplýsingatækni hefur gert dreifingu mynd- og hljóðefnis einfaldari en nokkru sinni fyrr. Þá kemur fram að frá setningu íslenska bannákvæðisins við klámi hafi viðhorf samfélagsins til kynlífs og kynhegðunar hins vegar stórbreyst til hins betra. Núgildandi bann úr takti við nútímaviðhorf „Almennt er það ekki talið vera í verkahring yfirvalda að ákveða hvers konar kynlíf fólk kjósi að stunda hvert með öðru, heldur snýst umræða um siðferðisleg mörk kynlífs fyrst og fremst um að til staðar sé upplýst samþykki allra sem í hlut eiga. Núgildandi bann við dreifingu kláms tekur ekki tillit til þeirrar siðferðislegu grundvallarspurningar og er að því leyti úr takti við nútímaviðhorf til kynlífs og kynhegðunar, eða með öðrum orðum úrelt.“ Bent er á að birting og dreifing kláms er sama eðlis og er ekki skaðleg öðrum og þjóðfélaginu í heild, heldur var hún á sínum tíma talin svo siðferðislega ámælisverð að fyrir slíka hegðun þyrfti að hafa refsingu. Bannið sé því tímaskekkja sem verði að fjarlægja úr lögum. Á öðrum stað í frumvarpinu segir að líta þurfi til að hér á landi starfar þónokkur fjöldi fólks við háttsemi sem í dag myndi flokkast sem refsiverð samkvæmt greininni. „Hér er einna helst um að ræða fólk sem framleiðir efni fyrir erótískar efnisveitur á borð við OnlyFans. Óháð því hvaða skoðanir fólk kann að hafa á slíkum miðlum þá er það ótækt að hér á landi skuli í landslögum vera refsingar fyrir það að miðla erótísku eða klámfengnu efni sem fólk hefur sjálft framleitt, af sjálfu sér, á internetið. Það er engin þörf á því að glæpavæða þá háttsemi.“ Frásagnir brotaþola hjá Stígamótum endurspegla áþreifanlega áhrif kláms Kvenréttindafélag Íslands er ósammála því að öll refsiheimild er tengist klámi verði afnumin og hvetur stjórnvöld því til þess að hafna þessu frumvarpi í heild sinni. Í umsögn félagsins er bent á að rannsóknir hafi sýnt fram á hvernig kynferðisleg áreitni og misnotkun byggð á klámi getur tengst vændi og mansali. Til að mynda kom fram í rannsókn Stígamóta frá 2022 að helmingur ofbeldismanna sem hafði milligöngu um vændi beitti brotaþolann einnig nauðgun og rúmlega 20 prósent beittu þau kynferðislegri áreitni eða einhverskonar misnotkun sem tengdist klámi. Félagið leggur til að áður en farið er í breytingar á lögum um bann við klámi þurfi að framkvæma rannsóknir og fara í greiningarvinnu til þess að tryggt sé öryggi bæði þeirra sem verða þolendur innan klámiðnaðarins og þeirra sem verða fyrir ofbeldi tengdu klámáhorfi. „Stígamót skilgreina afleiðingar kynferðisofbeldis sem tengist klámi svipuðum og afleiðingum annars kynferðisofbeldis; skömm, sektarkennd, þunglyndi, kvíði og brotin sjálfsmynd. Þá má einnig minnast á að meðalaldur íslenskra stráka þegar þeir horfa á klám í fyrsta skipti eru 11 ár og rannsókn ríkislögreglustjóra sem sýnir að íslenskir unglingsstrákar horfa mest á klám í samanburði við jafnaldra þeirra í Evrópu, og sjáum við stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum aukast í samræmi við það. Tölfræði Stígamóta sýnir að gerendur kynferðisofbeldis eru fyrst og fremst ungir menn. Ennfremur endurspegla frásagnir brotaþola áþreifanlega áhrif kláms. Kynferðisofbeldi er ekki náttúrulögmál heldur lærð hegðun og rannsóknir sýna að þar geti klámáhorf spilað stórt hlutverk og haft mikil áhrif, t.a.m. á viðhorf til kynlífs, upplifunar á kynlífi, kynverund áhorfandans og viðhorfs til kvenna.“ Nauðsynlegt sé að styrkja lögin gegn barnaníðsefni Félagið er þó sammála því að uppfæra þurfi löggjöfina, sérstaklega með tilliti til þeirra sem útbúa og dreifa efni af sjálfum sér, eins og t.d. á OnlyFans eins og frumvarpið minnist á. Þá væri hægt að fara sömu leið og löggjöfin sér vændi; það er að ólöglegt sé að dreifa, kaupa eða taka upp efni af líkama annarra, en að það sé ekki refsivert að deila efni af sjálfum sér. Þá ítrekar Kvenréttindafélag Íslands að nauðsynlegt sé að styrkja lögin gegn barnaníðsefni með því að flytja ákvæði þess efnis svo að falli inn í kafla hegningarlaganna sem tekur á ofbeldi gegn börnum. Sem stendur eru ákvæði um barnaníð sett sem undir ákvæði sem kveður á um bann við framleiðslu, innflutningi, birtingu og dreifingu á klámi. Félagið telur að ákvæði myndefnis sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni eða sýnir barn á kynferðislegan hátt eigi ekki heima undir þeirri grein, heldur frekar í þeim kafla hegningarlaganna sem tekur á kynferðisbrotum gegn börnum.
Klám Mest lesið Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Innlent Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Fleiri fréttir Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Sjá meira