Lífið

Var alltaf feiminn í æsku

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Arnar Gauti Arnarsson, Lil Curly, er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.
Arnar Gauti Arnarsson, Lil Curly, er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. Instagram @lilcurlyhaha

Arnar Gauti Arnarsson er með sanni betur þekktur sem Lil Curly og hefur náð gríðarlegum fylgjendafjölda á samfélagsmiðlum á borð við TikTok og Instagram. Arnar Gauti var feiminn sem krakki en hefur með aldrinum sigrast á því með lífsmottóinu sínu. Hann er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Innblásturinn er fastur liður hjá Lífinu á Vísi þar sem rætt er við ólíkt fólk um hvað veitir því innblástur í tilverunni og hvaða ráðum þau luma á varðandi andlega heilsu.

Hver ert þú í þínum eigin orðum?

Curly. Ég elska liffa, njóta og slagga.

Hvað veitir þér innblástur?

Hundar, sætir hundar.

Hvað er þitt besta ráð til að næra andlega heilsu?

Að eiga vini sem hata ekki sjálfa sig og umkringja þig góðu fólki. Svo síðast en ekki síst að vera með markmið.

Hvernig er hefðbundinn dagur í þínu lífi?

Ég vakna 5:30, fæ mér sellerí djús, fer í klakabað og fer út að hlaupa. 

Fer svo heim og hugsa minn gang og beint í gym. 

Hitti strákana og fæ mér stakann út af því að ég hata allar franskar nema þetta séu curly fries.

Uppáhalds lag og af hverju?

The spins með Mac Miller. Only good vibes.

Uppáhalds matur og af hverju?

Ég elska gott sushi, út af því að það bragðast bara svo ógeðslega vel.

Besta ráð sem þú hefur fengið?

Alltaf þegar einhver annar fer ekki þangað, það er þá sem þú skýst upp. Þetta er klárlega á toppnum hjá mér. 

Líka þeir skora sem þora, ég var alltaf feiminn í den svo þetta nýttist mér vel.

Hvað er það skemmtilegasta við lífið?

Ég er bestur þegar ég vakna og það er goodshit veður úti! Sólskin og Los Angeles takk fyrir, ég þarf eiginlega ekki meira en það. 

En alveg líka að fá að vera heilbrigður, eiga góða að og svo nær það eflaust toppnum í góðu fylleríi.

Tengdar fréttir

Finnur æðruleysi í lægðunum

Tónlistarmaðurinn, leikarinn og lífskúnstnerinn Júlí Heiðar átti öfluga endurkomu inn í íslenskt tónlistarlíf á síðasta ári þegar hann sendi frá sér lagið Ástin heldur vöku sem sat meðal annars í fyrsta sæti Íslenska listans á FM957. Hann var að senda frá sér lagið Hærra og nýtir tónlistina sem tjáningarform. Júlí Heiðar er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

„Lífið er núna, ekki í gær eða á morgun“

Mari Järsk er nafn sem flestir landsmenn kannast við en hún hefur svo sannarlega skarað fram úr í hinum ýmsu hlaupum og er ein öflugasta hlaupakona landsins. Hún elskar tilveruna, lifir í augnablikinu, er móttækileg fyrir margbreytileika lífsins og segir fólkið sitt það dýrmætasta sem hún á. Mari Järsk er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Ætlaði sér að verða lögfræðingur en fann ástríðuna annars staðar

Indíana Nanna Jóhannsdóttir stefndi á að verða lögfræðingur þegar lífið tók óvænta beygju og hún fann ástríðuna í óhefðbundinni styrktarþjálfun og pælingum um mataræði. Hún hefur nú haldið ýmis vinsæl námskeið um mataræði, hreyfingu og svefn þar sem hún leggur áherslu á það sem hún kallar ánægjulegar og raunhæfar leiðir. Indíana Nanna er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.