Skýrsla Sindra: Þið tókuð af okkur HM Sindri Sverrisson skrifar 11. október 2022 22:54 Glódís Perla Viggósdóttir reynir að hughreysta Söru Björk Gunnarsdóttur. Hver veit hvort þær fái aftur tækifæri saman til að komast á HM? VÍSIR/VILHELM Það var líkt og að sár grátur fyrirliðans Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, sitjandi í miðjuhringnum á Estádio da Mata Real, bergmálaði um leikvanginn og yfirgnæfði fagnaðaróp Portúgala í kvöld. Svo bersýnileg voru vonbrigðin. HM-draumurinn var úti og það með eins ósanngjörnum hætti og hugsast getur.
Þetta var mögulega síðasti séns Söru á að komast á HM. Það viðurkenndi hún sjálf eftir leik. Eina rósin sem vantaði í hnappagatið fölnaði undir furðulegum flautukonsert hins virta, franska dómara Stéphanie Frappart sem einfaldlega átti langverstu frammistöðuna í Pacos de Ferreira þetta kvöld. Vonbrigðin eru svo ofboðsleg að það er vart hægt að lýsa þeim. Sérstaklega fyrir leikmenn eins og Söru, Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur, Söndru Sigurðardóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur sem hafa afrekað svo margt og áttu skilið að komast á HM. Ósanngjörn ákvörðun UEFA og dýrkeypt mistök dómarans En þær töpuðu leiknum? Jú, vissulega, en það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd að UEFA lagði keppnina upp með afar ósanngjörnum hætti, þannig að þó að Ísland ætti betri undankeppni en Portúgal, og væri ofar á öllum styrkleikalistum eftir árangur síðustu ára, fékk Portúgal að spila á heimavelli bara sökum heppni. Ég efast ekki eina sekúndu um að Ísland hefði klárað dæmið á Laugardalsvelli. Á meðan að þessi ákvörðun UEFA um að láta HM-farseðil velta á einum umspilsleik, þar sem dregið er um heimavöll, er afar ósanngjörn þá voru auk þess stórar ákvarðanir Frappart í leiknum einfaldlega rangar. Mér dettur ekki í hug að efast um heilindi dómarans en hún gerði svo dýrkeypt mistök að það er ekki hægt að horfa framhjá þeim. Stéphanie Frappart gaf Áslaugu Mundu rauða spjaldið og neitaði að breyta dómnum þrátt fyrir ábendingu myndbandsdómara.VÍSIR/VILHELM Þar á ég auðvitað sérstaklega við rauða spjaldið sem hún gaf Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur snemma í seinni hálfleik, rétt eftir að Sveindís Jane Jónsdóttir virtist hafa komið Íslandi yfir. Í bæði skiptin nýtti Frappart ábendingu frá myndbandsdómara en varðandi rauða spjaldið sá hún ekki það sem allir ættu þó að geta séð, að Áslaug Munda rændi leikmann Portúgals ekki upplögðu marktækifæri og ef að á annað borð um brot var að ræða, sem ég efast stórlega um, þá verðskuldaði það í versta falli gult spjald. Portúgal komst svo yfir úr vítinu sem dæmt var við sama tilefni. Íslenska liðið, eins og íslenska þjóðin, var reitt eftir þessi mistök og reiðin braust út í sennilega besta kafla liðsins sem uppskar fljótt jöfnunarmark úr smiðju Glódísar Perlu Viggósdóttur. Engu að síður var þetta rauða spjald vendipunkturinn sem að lokum réði úrslitum í leiknum. Glódís var sú eina á vellinum í kvöld sem lék í allra hæsta klassa og var gjörsamlega frábær í að stöðva kvika og erfiða sóknarmenn Portúgals hvað eftir annað, auk þess að skora markið laglega. Ísland var ekkert ólíklegra en Portúgal til að tryggja sér sigur í venjulegum leiktíma en í framlengingunni virtist bensínið búið á tanknum hjá ansi mörgum, og Portúgal raðaði inn þremur mörkum til að tryggja sér sigur (en þó ekki öruggt sæti á HM nærrum því strax). Eftir stendur því að þrátt fyrir frábæra undankeppni, þar sem einu töp Íslands komu gegn Hollandi, þurfa stelpurnar okkar enn á ný að bíða eftir því að spila í fyrsta sinn á HM. Elstu leikmenn liðsins þurfa væntanlega að kveðja þann möguleika endanlega. Rétt eins og á EM skilur afskaplega lítið á milli feigs og ófeigs, og erfitt að vera með stórar fullyrðingar um annað en að Ísland sé á ágætri leið undir stjórn Þorsteins Halldórssonar. Samkvæmt gildandi samningi hans við KSÍ fær hann annan séns á að komast á HM, mótið sem fram fer 2027, og þó að einhverjir leikmenn detti út á næstu árum er ljóst að í íslenska hópnum er efniviður til að ná á endanum HM-takmarkinu. Um það er hins vegar erfitt að hugsa þegar svekkelsið er eins mikið og í kvöld, þegar rangar og ósanngjarnar ákvarðanir annarra aðila hafa haft eins afdrifaríkar afleiðingar og raun ber vitni. Þá er kannski bara betra að leyfa tárunum að streyma í grasið, og tímanum að græða sárin.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Fótbolti Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Sjá meira