Bólusetningartregðan kostaði Irving hundrað milljónir Bandaríkjadala Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2022 13:31 Kyrie Irving bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. getty/Dustin Satloff Kyrie Irving, leikmaður Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, segir að tregða sín við að láta bólusetja sig fyrir kórónuveirunni hafi kostað sig samning upp á rúmlega hundrað milljónir Bandaríkjadala.
Irving neitaði að þiggja bólusetningu og gat fyrir vikið ekki spilað heimaleiki Brooklyn í New York og heldur ekki í þeim ríkjum þar sem bólusetning var skilyrði fyrir þátttöku í leikjum. Að sögn Irvings kom bólusetningartregða hans í veg fyrir að hann fengi risa stóran samning. „Ég gaf frá mér fjögurra ára og hundrað og eitthvað milljóna Bandaríkjadollara samning til að vera óbólusettur og þetta var ákvörðunin. Fá samninginn eða ekki, vera bólusettur eða ekki og það er óvissa með framtíðina, hvort þú verður áfram hjá liðinu eða í deildinni. Ég þurfti að takast á við það að missa mögulega starfið mitt út af þessari ákvörðun,“ sagði Irving á fjölmiðladegi Brooklyn. Irving vonaðist til að gengið yrði frá samningsmálum hans fyrir síðasta tímabil en það gekk ekki eftir. „Það gerðist ekki vegna bólusetningarstöðunnar. Ég skildi afstöðu þeirra og þurfti að lifa með því. En það var erfitt að sætta sig við það,“ sagði Irving. Sean Marks, framkvæmdastjóri Brooklyn, sagðist ekkert til í því að félagið hefði sett Irving afarkosti vegna bólusetningar. Málið hafi hins vegar flækst umtalsvert þegar bólusetningarreglur í New York voru hertar. Irving lék aðeins 29 leiki með Brooklyn á síðasta tímabili. Í þeim var hann með 27,4 stig, 4,4 fráköst og 5,8 stoðsendingar. Irving kom til Brooklyn frá Boston Celtics fyrir þremur árum.
NBA Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira