Lífið

Mynda­veisla frá eftir­partýi fjár­festa­dagsins í Grósku

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá aðaldegi Startup SuperNova.
Frá aðaldegi Startup SuperNova. Samsett

Frambærilegustu og efnilegustu sprotafyrirtæki landsins kynntu viðskiptahugmyndir sínar fyrir fullum hátíðarsal í Grósku á aðaldegi Startup SuperNova.

Að loknum kynningunum var slegið upp í heljarinnar partý í höfuðstöðvum KLAK, Grósku þar sem einn vinsælasti tónlistarmaður landsins Emmsjé Gauti, hin goðsagnakennda Cell 7 tróðu upp og trilltu lýðinn. Fjárfestadagurinn eins og og hann er jafnan kallaður fór langt fram úr vonum allra. Fulltrúar Nova, aðal bakhjarl Startup SuperNova, frumkvöðlar, sprotar og fjárfestar fögnuðu öll vel með mat og drykk.

Panellinn í Pitch - Kristján Ingi Mikaelsson hjá MGMT, Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry og Guðjón Már Guðjónsson hjá OZ.

Startup SuperNova, viðkiptahraðallinn, er feikistór stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki og mikilvægur vettvangur til tengslamyndunar við aðila í atvinnulífinu, reynda mentora og frumkvöðla sem hafa yfir að ráða þekkingu og reynslu á sprota- og nýsköpunarumhverfinu. Markmið hraðalsins er að styðja við frekari vöxt fyrirtækja tengdum hugviti, nýsköpun og tækni. Nova er helsti bakhjarl hraðalsins sem fór fram í þriðja sinn í ár.

Frá fjárfestadegi Startup SuperNova.

„Grasrótin er orðin gríðarlega öflug og hefur KLAK skipað sér sess sem lykilaðili í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi og hefur lagt sig fram við að vera leiðandi afl í grasrót frumkvöðlasamfélagsins. Þungavikta konur og menn úr viðskiptalífinu hafa verið viðloðandi sprotaumhverfisins frá upphafi og einn þeirra sem þekkir vel til er Guðjón Már Guðjónsson sem jafnan er kenndur við Oz en hann tók stöðu í panel og spurði sprotana spjörunum úr ásamt Kristjáni Inga Mikaelssonar hjá MGMT, Jenný Ruth Hrafnsdóttur hjá Crowberry,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.

Emmsjé Gauti steig upp á svið í Grósku og gerði allt vitlaust.

Startup SuperNova er samstarfsverkefni KLAK – Icelandic startups og Nova þar sem leitast er við að byggja upp viðskiptalausnir en KLAK er í eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Samtaka atvinnulífsins, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Origo.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá þessum viðburði. 

DJ Curly var góðu stuði í SYKYUR salnum í Veru Mathöll
Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson.
Sunna Halla Einarsdóttir fjármálastjóri KLAK
Aðdáendur Emmsjé Gauta í góðum fíling á Startup SuperNova
Bergur Ebbi var kynnir á fjárfestadeginum.
Stemning eftir Pitch teymanna í Startup SuperNova.
Daníel Már Friðriksson frá Euneo
Eyþór Ívar Jónsson og Stefán Baxter
Ragna Kjartansdóttir
Magnús Árnason, Framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar Nova
Kristján Schram hjá Instrument
Katrín Jónsdóttir frá Núnatrix
María de la Rosa, Gústaf Guðmundsson, Helga Jónsdóttir, Guðjón H. Bernharðsson, Inger Rós Ólafsdóttir og Baldvin Baldvinsson.
Emmsjé Gauti tók lagið í Grósku
Guðjón Már Guðjónsson hjá OZ
Eyþór Ívar Jónsson og Magnús Árnason
Katrín Aagestad Gunnarsdóttir Markaðsstjóri Nova og Guðrún Finnsdóttir Þjálfari - Nova skólinn og kúltúr
Nína Auðardóttir, Guðrún Ragnarsdóttir og Ari Björn Ólafsson
Guðjón H. Bernharðsson hjá Mindnes
Nína Auðardóttir, Guðrún Ragnarsdóttir og Ari Björn Ólafsson
Cell7 skemmti öllum í Grósku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.