Lífið

Britney biður þess að foreldrar sínir brenni í helvíti

Elísabet Hanna skrifar
Britney Spears er dugleg að tjá sig um tilfinningarnar sínar á Instagram.
Britney Spears er dugleg að tjá sig um tilfinningarnar sínar á Instagram. Getty/Mondadori Portfolio

„Ég segi það hátt og stolt, ég bið þess að þið brennið bæði í helvíti,“ sagði söngkonan Britney Spears í færslu um foreldra sína á Instagram í gær. Britney er dugleg að deila hugsunum sínum með fylgjendum á miðlinum og segir það hjálpa sér andlega.

Í færslunni baðst hún einnig afsökunar á því að hún muni aldrei gleyma sársaukanum sem hún hefur þurft að fara í gegnum og að hún eigi erfitt með að sætta sig við það sem fjölskyldan gerði henni, „það verður erfitt fyrir mig út lífið,“ segir hún. 

Textinn sem Britney birti við tóma mynd.Skjáskot/Instagram

Aðeins tíu mánuðir síðan

Hún minnir á að það séu aðeins tíu mánuðir síðan hún hlaut sjálfræði sitt aftur eftir að faðir hennar fór með það í þrettán ár. Stuttu áður birti hún fimm myndbönd í röð með engu nema hljóði. Í þeim byrjaði hún á því að útskýra að hún þyrfti að tjá sig. Aðdáendur sendu henni skilaboð undir myndböndin og hvöttu hana í að nýta málfrelsi sitt. 

Elskar börnin sín

„Það eina sem ég veit er að ást mín á börnunum mínum er meiri en allt og fyrirgefið ef ég gerði eitthvað til að særa ykkur,“ sagði hún meðal annars í einu myndbandinu. „Ég skil ekki hvernig það er svona auðvelt fyrir þá að loka á mig, ég skil það ekki,“ segir hún einnig um strákana sína.

Í myndböndunum opnaði hún sig einnig um þá sálfræðiaðstoð sem hún er að sækja sér, sem felur meðal annars í sér samskipti við hesta. Britney segist eiga erfitt með að ná tengingu við fólk á ný eftir að hafa liðið eins og hún væri tilraunadýr á einhverjum tímapunkti á ævinni.


Tengdar fréttir

Brit­n­ey verður á­fram á valdi föður síns

Dómari í sjálfræðismáli söngkonunnar Britney Spears tilkynnti í gær að faðir hennar, Jamie Spears, verði áfram með fjárhagslegt vald yfir henni. Vika er síðan Britney flutti tilfinningaríka ræðu fyrir dómara í Los Angeles og var niðurstaðan kveðin upp í gær.

Samsæriskenningin sem reyndist sönn

„Þetta var bara bomba,“ segir Elva Björk Ágústsdóttir sálfræðingur um vitnisburð söngkonunnar Britney Spears fyrir helgi. Elva Björg heldur úti hlaðvarpinu Poppsálin og fór hún yfir Britney málið í Bítinu á Bylgjunni í dag.

„Ég hef logið því að heiminum að allt sé í lagi og mér líði vel“

Brit­n­ey Spears tjáði sig í dag í fyrsta skipti opin­ber­lega um líf sitt undir á­kvörðunar­valdi föður síns frá því að hún var svipt sjálf­ræði árið 2008. Hún kom fyrir dómara í Los Angeles í dag í opnum réttarhöldum þar sem hún fer fram á að endur­heimta sjálf­ræði sitt.

Britney Spears og Elton John sameina krafta sína

Söngkonan Britney Spears virðist ætla að gefa út nýja tónlist og það með engan annan en Elton John sér við hlið. Samkvæmt heimildum Page Six hafa þau sameinað krafta sína í endurútgáfu af laginu „Tiny Dancer“ sem kom upphaflega út árið 1971.

Britney Spears lét allt flakka í nýju myndbandi

Söngkonan Britney Spears birti rúmlega tuttugu mínútna myndband á Youtube í gær þar sem hún tjáði sig meðal annars um sjálfræðisbaráttu sína. Myndbandinu hefur nú verið lokað og Britney hefur eytt Twitter færslu þar sem hún auglýsti það. Einnig virðist Britney hafa lokað Instagram reikning sínum aftur, þó ekki sé vitað hve lengi það verður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.