Lífið

Stjörnulífið: Tímamót, bombur og maraþon í Frakklandi

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Skjáskot/Instagram

Íslendingar virðast vera að taka út ferðalögin og stórafmælin sem féllu niður vegna heimsfaraldursins þessa dagana. Mikið hefur verið um viðburði og fögnuði og ekkert lát virðist vera á slíku í framtíðinni því listafólk er strax er byrjað að undirbúa jólaskemmtanirnar. 

Tónlistarmaðurinn Bubbi fagnar 26 árum edrú og segir vonina vera besta ferðafélagann.

Ráðherrann Áslaug Arna hlaut verðlaunin Politician of the Year 2022 á One Young World ráðstefnunni í Manchester. „Mín lífsins lukka að eiga svona kröftugar og skemmtilegar vinkonur sem mættu til London til að fagna með mér,“ segir hún einnig um vinkonur sínar sem flugu út til hennar.

Leikara hjónin Nína Dögg og Gísli Örn skelltu sér í maraþon í Frakklandi þar sem hlaupið er í gegnum vínekrur. Boðið er upp á nokkur stopp þar sem hægt að hlusta á tónlist og bragða á víni, ostrum og steik. Flestir sem taka þátt í maraþoninu hlaupa í búningum. 

Hlaðvarpararnir Sunneva Einars og Birta Líf voru með beina útsendingu frá hlaðvarpinu Teboðið.

Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson eru byrjaðir að æfa fyrir tónleika í desember. 

Rapparinn Emmsjé Gauti er þakklátur fyrir októberfest og er byrjaður að undirbúa Jülevenner 2022.

Söng- og leikkonan Salka Sól er spennt fyrir vetrinum í Þjóðleikhúsinu.

Birgitta Líf og LXS raunveruleikaþættirnir tilkynntu um komu seríu 2.

Tónlistarfólkið Magnús Jóhann og GDRN eru alsæl með plötuna sína sem var að koma til landsins. 

Áhrifavaldurinn Fanney Ingvars fór í þrítugsferð með vinkonum sínum til Svíþjóðar. 

Söngvarinn Friðrik Ómar æfði Zoolander svipinn í Kaupmannahöfn.

Áhrifavaldurinn Guðrún Sørtveit fagnaði 29 árum og bíður spennt eftir barni númer tvö.

Tískugyðjan Elísabet Gunnarsdóttir er líka að bíða eftir barni, en þó sínu þriðja.

Söngvarinn Birgir Steinn er orðinn þrítugur og kominn með illt í bakið.

Tónlistarmaðurinn Krummi er að vinna að nýju efni.

Söngkonan Bríet fann vegg sem skín jafn skært og hún sjálf.

Raunveruleikastjarnan Patrekur Jamie fagnar því að hafa verið í nýja myndbandinu fyrir GusGus við lagið Bolero.

Leikkonurnar Selma Björnsdóttir, Unnur Ösp og Nína Dögg eru skvísur uppi á fjalli.

Áhrifavaldurinn Erna Hrund og Lotta Lena eru að koma sér í rútínu fyrir haustið.

Þjálfarinn Sandra Björg og eiginmaður hennar Hilmar Arnarson bjóða Begga Ólafs velkominn til Los Angeles.

Förðunarfræðingurinn og eigandi Blank Reykjavík, Agnes Björgvinsdóttir, á von á barni 

Brooks Laich fyllir hjarta crossfit stjörnunnar Katrínar Tönju.

Söngkonan Jóhanna Guðrún birti bombu mynd.

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra er þakklát fyrir sitt og sína.

Förðunarfræðingurinn Ingunn Sigurðardóttir og kærastinn hennar Svavar Guðjónsson eru stödd á Ítalíu í brúðkaupi. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Barnalán, berjamór og Ljósanótt

Haustið er mætt í allri sinni dýrð og virðast samfélagsmiðlar iða af spenningi yfir rútínu, hlýjum peysum og kertaljósi. Þó eru ekki allir tilbúnir að sleppa sumrinu og hafa haldið erlendis til þess að heilsa upp á sólina. Ljósanótt fór fram og skartaði himininn sínum fallegu norðurljósum í tilefni þess.

Stjörnulífið: Skemmtiferðaskip, barneignir og útlönd

Stjörnulífið þessa vikuna var fullt af stemningu, barneignum og utanlandsferðum. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima og guðmóðir þess Katy Perry stálu senunni um helgina en íslenskar stjörnur skemmtu einnig gestum skipsins. 

Stjörnulífið: Ítalskur draumur, sveitabrúðkaup og lúxus

Ástin leyndi sér ekki í stjörnulífinu þar sem brúðkaup voru um víðan völl, meðal annars á Ítalíu og í sveitinni. Svavar Örn og Daníel Örn gengu í það heilaga eftir nítján ára samband og Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik deildu kossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.