Holland sótti án afláts nær allan leikinn en sigurmarkið kom ekki fyrr en það voru 90 sekúndur til leiksloka. Súrara verður það ekki. Hér að neðan má sjá það helsta sem fór fram á samfélagsmiðlinum Twitter í kringum leikinn.
Blaðamennirnir voru klárir í bátana töluvert áður en stúkan fylltist.
Þetta er okkar staður, þetta er okkar stund! pic.twitter.com/pnxIEks97S
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) September 6, 2022
Þegar þú segir það.
Ég sver Ísland spilar hlutfallslega oftar á móti Hollandi en nokkru öðru landi
— Alexandra Ýr (@alexandravanerv) September 6, 2022
Nostalgían var mikil hjá sumum.
Geggjaðar minningar frá stórum leikjum gegn Hollandi. Sigurmarkið hjá Ástu B. á Laugardalsvellinum og Ásthildar& Olgu combo í Rotterdam. Auðvitað skallinn hennar Dagnýjar í Svíþjóð. Vá hvað ég væri til í svoleiðis móment í kvöld.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) September 6, 2022
Spennan var mikil en það náðu þó ekki allir að sjá leikinn. Þá er gott að geta gripið í beina textalýsingu.
En mig langar svo að sjá leikinn @ruvithrottir pic.twitter.com/zuPA1qZT81
— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) September 6, 2022
Veistu það @ruvithrottir ég fyrirgef það aldrei ef þetta app skemmir þennan leik fyrir mér
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) September 6, 2022
Allar mínar vonir og væntingar eru þarna núna pic.twitter.com/e1nyLcYzQf
— Helena Ólafsdóttir (@helenaolafs) September 6, 2022
Það heyrist alltaf vel í íslensku stuðningsfólki.
Geggjað að heyra í 150 íslenskum stuðningsmönnum innan um þúsundir Hollendinga.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) September 6, 2022
Hollenska liðið var mjög nálægt því að komast yfir en Sandra Sigurðardóttir var vandanum vaxin. Hún hélt íslenska liðinu inn í leiknum.
Úff!! Þverslá og línuhreinsun. Það er þung pressa hjá Hollendingum núna. Tvö sláarskot og Guðný hreinsar á línu. Ennþá markalaust sem betur fer. pic.twitter.com/HmhFFjsrLn
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
Þessar vörslur hjá Söndru eru klárlega í HM-klassa. Þvílíkt og annað eins. 20% meiri baráttu úti á velli og aðeins fleiri sendingar sem rata á samherja og þá getum við alveg skorað á þetta lið #fotbolti
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) September 6, 2022
Öll íslenska þjóðin við Söndru Sigurðar eftir þennan fyrri hálfleik: pic.twitter.com/yFB24Ndv8X
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) September 6, 2022
Queen Sandra Sig
— Ásta Sigrún (@astasigrun) September 6, 2022
OMG Sandra
— Svava Gretarsdóttir (@SvavaGretars) September 6, 2022
Hollendingarnir að reyna að koma boltanum fram hjá Söndru. pic.twitter.com/ItsqAq9TwC
— Henry Birgir (@henrybirgir) September 6, 2022
Jesús minn úr hverju er Sandra gerð
— Helena Ólafsdóttir (@helenaolafs) September 6, 2022
Vá Sandra
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) September 6, 2022
Íslenska komst ekki í margar sóknir í leiknum.
Hvert er leikplanið hérna? Að lúðra bara boltanum upp kantana við fyrsta mögulega tækifæri og vona að Sveindís stingi þær af? Af hverju droppa þær svona ógeðslega djúpt og bjóða hollensku að sækja stanslaust á sig? Ég skil ekki hver taktíkin er hérna.
— Atli Már Steinarsson (@RexBannon) September 6, 2022
Er planið að verjast eitthvað eða bara fylgjast með og vona að sláin reddi þessu í klukkutíma í viðbót?
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 6, 2022
Úff. Þetta er eiginlega óbærileg pressa. Koma svo Ísland!!
— Árni Jóhannsson (@arnijo) September 6, 2022
Amanda eða einhver sem vill hafa boltann verður að koma inná í hálfleik
— Einar Guðnason (@EinarGudna) September 6, 2022
Fyrri hálfleikurinn:@RanieNro pic.twitter.com/Trnq9pvtfL
— Edda Sif Pálsdóttir (@EddaSifPalsd) September 6, 2022
Ísland hefur ekki varist svona mikið gegn Hollendingum síðan í IceSave.
— Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (@thorkellg) September 6, 2022
Alltaf sami hrokinn í Hollendingum.
Hroki í Hollendingum í stúkunni gegn Íslandi. Einbeita sér bara að Sevilla-Manchester City og öskra Haaland *klapp klapp klapp* Haaland
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) September 6, 2022
Sara Björk Gunnarsdóttir er sannur fyrirliði.
Sara er alltaf mætt að verja sínar konur. Frábær leiðtogi
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) September 6, 2022
Sveindís Jane Jónsdóttir fékk besta færi Íslands, ef færi má kalla.
NEI SVEINDÍS !!! Besta færi Íslands kemur á 72. mínútu. Það er mun betra að sjá til íslenska liðsins í seinni hálfleik. Ennþá markalaust. pic.twitter.com/kicr3VK7Ec
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
þetta var það sem bretinn kallar sitter
— Tómas (@tommisteindors) September 6, 2022
Sigurmarkið kom í blálokin.
Þetta var ekkert eðlilega súrt mark að fá á sig í uppbótartíma
— Hermann Árnason (@HermannArnason) September 6, 2022
Viðbjóður en líklega sanngjarnasta mark í heimi.
— Teitur Örlygsson (@teitur11) September 6, 2022
Feeling: Eitt eilítið smáblóm með titrandi tár #hmruv
— Magnús H. Jónasson (@Maggih90) September 6, 2022
Maður er bugaður eftir þennan leik. Takk fyrir stelpur. Þessi barátta maður minn. Næsta mál.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) September 6, 2022
Djöfuls viðbjóðursendir á þessum leik. Frammistaða upp á 11 hjá @sandruz. Við mössum þetta umspil bara og förum á HM. Og hana nú!
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) September 6, 2022
lengri leiðin er það en þessi kona pic.twitter.com/LvTR8v7UT3
— Harpa Þorsteins (@HarpaThorsteins) September 6, 2022
finn til með ykkur stelpur og öllu teyminu. Þið eruð hetjur. Þetta var gjörsamlega brutal - Þið takið þetta umspil og komist á HM, eigið það svo skilið. Sandra þvílíkur leikur @sandruz #fotboltinet
— Guðbjörg Gunnarsd. (@GuggaGunnars) September 6, 2022
Höfuðið hátt.
— irikur Jónsson (@Eirikur_J) September 6, 2022
Sandra kona leiksins.
Ekkert til að skammast sín fyrir.
Takk fyrir mig.
Sandra geggjuð, vörnin frábær en sóknarlega þurfum við meira. Flókið umspil framundan en áfram gakk
— Helena Ólafsdóttir (@helenaolafs) September 6, 2022