Tónlist

Lauf­ey Lín með eina vin­sælustu plötu Banda­ríkjanna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Laufey situr í tíunda sæti á Spotify listanum TOP 10 ALBUM DEBUT.
Laufey situr í tíunda sæti á Spotify listanum TOP 10 ALBUM DEBUT. Instagram @laufey

Tónlistarkonan og djass söngkonan Laufey Lín Jónsdóttir situr í tíunda sæti yfir vinsælustu nýju plöturnar á topplista Spotify í Bandaríkjunum. Platan heitir Everything I Know About Love og kom út 26. ágúst síðastliðinn.

Laufey hefur verið rísandi stjarna í hinum stóra tónlistarheimi að undanförnu og kom meðal annars fram í sívinsæla spjallþætti Jimmy Kimmel í byrjun árs

Hún deildi nýjasta afreki sínu á Instagram síðu sinni þar sem hún skrifaði meðal annars:

„Ég sit í flugvél akkúrat núna og byrjaði bara að gráta. Takk fyrir alla ástina sem þið hafið sýnt mér undanfarna daga og fyrir fallegu skilaboðin og hlýju orðin um Everything I Know About Love. Ég er í himnaríki.“

Laufey stundaði nám við Berklee-tónlistarskólann í Boston, hefur komið fram á tónleikum víða og náð miklum vinsældum á samfélagsmiðlum. Hún er með rúmlega tvær milljónir mánaðarlegra hlustenda á streymisveitunni Spotify, 530 þúsund fylgjendur á TikTok og 340 þúsund fylgjendur á Instagram. Þá var hún lofuð af tónlistartímaritinu Rolling Stones fyrir fyrstu smáskífuna sína Typical of Me EP. 

Þann 27. október næstkomandi mun Laufey koma fram hérlendis í Hörpu ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og segir hún að þau muni flytja lög eftir sig ásamt uppáhalds djassperlunum sínum í hljómsveitar útsendingu.


Tengdar fréttir

Laufey Lin spilaði fyrir Jimmy Kimmel

Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir flutti lagið sitt Like the Movies í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi.

Kimmel sendi Lauf­eyju pylsusinnep eftir þáttinn

Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir fékk heldur betur sérstaka kveðju frá þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel í gærkvöldi. Laufey birti kveðjuna á Instagram-síðu sinni en hún flutti lagið sitt Like The Movies í spjallþætti Kimmel fyrir rúmri viku. 

Laufey lofuð í Rolling Stone

Fjallað er um fyrstu EP-plötuna sem tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir sendi frá sér á dögunum í bandaríska stórtímaritinu Rolling Stone. Fram kemur í umfjöllun Rolling Stone að mörg laganna á plötu Laufeyjar hafi hún samið á heimavistinni í Berklee-tónlistarskólanum í Boston, þar sem Laufey stundaði nám.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.