West Ham fær ítalskan landsliðsmann frá Chelsea Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. ágúst 2022 23:01 Emerson Palmieri er genginn til liðs við West Ham frá Chelsea. Matteo Ciambelli/DeFodi Images via Getty Images Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur gengið frá kaupum á ítalska landsliðsmanninum Emerson Palmieri frá nágrönnum sínum í Chelsea.
Palmieri kemur til West Ham á 15 milljónir punda, en það samsvarar rétt rúmlega tveimur og hálfum milljarði íslenskra króna. Félagið greiðir 13 milljónir strax, en tvær milljónir geta svo bæst við í gegnum árangurstengdar bónusgreiðslur. West London ➡️ East LondonWelcome, @emersonpalmieri! 🙌 pic.twitter.com/JUQfxah2fB— West Ham United (@WestHam) August 23, 2022 Þessi 28 ára bakvörður skrifar undir fjögurra ára samning við West Ham með möguleika á eins árs framlengingu. Hann lék á láni hjá Lyon í frönsku úrvalsdeildinni á seinasta tímabili, en Palmieri hefur átt í erfiðleikum með að festa sig í sessi hjá Chelsea síðan hann gekk til liðs við félagi frá Roma árið 2018. Palmieri er sjöundi leikmaðurinn sem West Ham fær til liðs við sig í sumar. Áður hafði liðið fengið þá Gianluca Scamacca, Nayef Aguerd, Maxwel Cornet, Flynn Downes, Thilo Kehrer og Alphonse Areola. Hann er fæddur í Brasilíu og lék með U17 ára landsliði Brassa á sínum yngri árum. Árið 2017 fékk hann þó ítalskt ríkisfang og hefur leikið 27 leiki fyrir ítalska A-landsliðið.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira