Rooney: Haaland mun ríða baggamuninn í toppbaráttunni Valur Páll Eiríksson skrifar 7. ágúst 2022 22:30 Rooney segir að Haaland verði markahæstur í vetur. vísir/Getty Wayne Rooney, næstmarkahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, er þess fullviss að Erling Haaland verði markakóngur á komandi leiktíð og muni leiða Manchester City til Englandsmeistaratitilsins.
Haaland klúðraði algjöru dauðafæri í Samfélagsskildinum síðustu helgi og hlaut gagnrýni fyrir, auk háðs frá stuðningsmönnum annarra liða. Hann svaraði heldur betur fyrir sig í dag þegar hann skoraði bæði mörk Manchester City í 2-0 sigri á West Ham í sínum fyrsta deildarleik fyrir tímabilið. Rooney segir að marga hafa gleymt sér í gleðinni yfir klúðri Haalands, þar sem hann hafi séð á hreyfingum hans og spilamennsku að hann verði öflugur á komandi leiktíð. Andmælendurnir nutu þess að sjá Haaland klúðra í Samfélagsskildinum. Ég sá þetta á annan hátt. Ég sá hvers vegna hann er að fara að skora helling á Englandi og mun ríða baggamuninn í titilbaráttunni. Ég held að hann geti skorað mark í hverjum leik og muni verða markakóngur, sagði Rooney. Rooney veit sitthvað um markaskorun á Englandi en hann skoraði á sínum tíma 208 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Aðeins Alan Shearer skoraði fleiri, 260 talsins. Hann er í dag þjálfari DC United í bandarísku MLS-deildinni og fékk nýverið Guðlaug Victor Pálsson í sínar raðir.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira