„Ert þú náunginn sem ætlar að spyrja um Haaland í hverri viku?“ Sindri Sverrisson skrifar 5. ágúst 2022 15:01 Mikil eftirvænting ríkir vegna frumraunar Erlings Haaland í ensku úrvalsdeildinni. Getty Pep Guardiola vill ekki vera að giska á hvað nýjasta stórstjarnan í liði Manchester City, Erling Braut Haaland, kemur til með að skora mörg mörk fyrir liðið í vetur.
Haaland lék allan leikinn þegar City tapaði fyrir Liverpool í leiknum um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi og klúðraði þar meðal annars dauðafæri. Hann spilar væntanlega sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag þegar City mætir West Ham. Á blaðamannafundi í gær vildi norskur blaðamaður vita hvað Guardiola héldi að Haaland myndi skora mörg mörk á leiktíðinni en knattspyrnustjórinn svaraði brosandi: „Ert þú náunginn sem ætlar að spyrja um Haaland í hverri viku?“ og uppskar hlátur. Hann bætti hins vegar við alvarlegri í bragði: „Hvað mun hann skora mörg mörk? Mér er sama. Við vinnum ekki fyrir Erling eða töpum fyrir Erling. Við verðum að vera við sjálfir. Hann er fljótur og í síðustu viku spilaði hann 90 mínútur í fyrsta sinn í fimm mánuði. Hann er stór og líkamlega sterkur leikmaður, svo hann þarf kannski aðeins meiri tíma til að komast í toppform. Hann mun skora mörk. Það hefur hann gert á hverju einasta keppnistímabili. Ég efast ekki vitund um að hann muni standa sig en hve mörg mörkin verða veit ég ekki.“
Enski boltinn Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Sjá meira