„Hér munu hlutir fæðast“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. ágúst 2022 11:01 Júlíanna Ósk Hafberg opnar sýningarrými síðar í dag. Aðsend Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar svokallað pop-up stúdíó og gallerí að Bankastræti 12. Hún fagnaði þrítugs afmæli sínu í síðustu viku og í tilefni af því mun hún halda sameiginlegt afmælisteiti og opnun á galleríinu í dag frá klukkan 17:00-20:00. Blaðamaður tók púlsinn á Júlíönnu og fékk að heyra nánar frá. „
Þetta kom rosa hratt og spontant inn hjá mér,“ segir Júlíanna um aðdraganda gallerísins en hún hafði verið að leita sér að vinnustofu í ágúst. „Geoff á Prikinu hafði samband við mig með þetta rými á Bankastræti 12, við hliðina á Prikinu. Rýmið er auðvitað bara á besta stað í bænum og ekki hægt að gera annað en að stökkva á það. Því má segja að þessi vinnustofuleit mín hafi undið skemmtilega vel upp á sig og ég hoppaði hratt til.“ View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Opið allan ágúst Áður hefur Júlíanna verið með svokallað Gallerí Heima, þar sem hún setur upp listasýningu í heimahúsum hjá fólki yfir helgi, og hafði hún hugsað sér að gera slíkt hið sama í ár. „Því var ég nú þegar í sýningar viðbragðsstöðu. Þetta verður skemmtilegur contrast við það Gallerí Heima, enda á besta stað í Bankastrætinu og verður opið hjá mér allan ágúst. Þar verð ég að brasa, vinna innan um verkin mín og taka á móti fólki.“ View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Lifandi rými Júlíanna segir að hugmyndin sé að vera með eins konar lifandi vinnustofu/sýningarrými út ágúst. „Ég ætla að reyna að vera við eins mikið og ég get ásamt því að vera að vinna að verkum í vinnslu og nýjum hugmyndum innan um þau verk sem ég á til og hef verið að vinna að undanfarið ár. Rýmið mun því breytast eftir því sem líður á með nýjum verkum og hugmyndum og vonast ég til að það verði litríkt og lifandi. Ég fæst við marga mismunandi miðla og efni og er mjög leikglöð og forvitin þegar kemur að sköpun og mun þetta rými endurspegla það. Þetta verður einstakt tækifæri til þess að ganga inn í sköpunarheim minn og sjá þar bæði tilbúin verk og verk að fæðast og hlakka ég til að taka á móti fólki þar og spjalla um lífið og listina. Öll tilbúin verk verða til sölu, sem og glæný eftirprent sem eru að koma beint úr prentsmiðjunni.“ View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Verslunarmannahelginni eytt í málningargallanum Júlíanna segir að rýmið sé bæði hrátt og gamalt en hún hefur nú þegar sett sinn svip á það. „Hér var áður úrsmiður í að ég held áratugi og verð ég að viðurkenna að ég hef aldrei gefið þessu rými mikinn gaum né komið hingað inn fyrr en nú. Það stendur til að fara í framkvæmdir á húsinu og því fékk ég mjög lausan taum og ákvað ég að heilmála loft, veggi og gólf í einkennislitunum mínum, bleikum og grænum. Verslunarmannahelginni var því eytt í málningargallanum með góðri bras vinkonu minni Helgu Lind Mar, og eyddi ég líka góðum part af þrítugsafmælinu mínu núna á sunnudaginn með bleika málningarbyssu við hönd.“ View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Lífið verður bara betra og betra Aðspurð um hvernig sé að líta yfir farinn veg á þessum tímamótum segir Júlíanna: „Það er mikil þakklætis tilfinning í mér að verða þrítug, því ég trúi því að lífið verði alltaf bara betra og betra eftir því sem maður vex og þroskast og lærir nýja hluti. Ef ég lít til baka er augljóst að ég hef vaxið mikið undanfarin ár og tekið margar góðar ákvarðanir sem hafa leitt mig akkúrat hingað. Fyrir þremur árum útskrifaðist ég úr leiðtoga og verkefnastjórnunarskólanum Kaospilot í Danmörku og vissi í raun ekki að ég myndi stíga svona fast inn í myndlistina eins og ég síðan gerði. Það hafa verið miklar sveigjur og beygjur hjá mér í leiðinni að myndlistinni, en ég er þakklát yfir því að ég er með opið og flæðandi hugarfar sem leyfir mér að taka beygjur og breyta um stefnur. Enda gerir það lífið svo spennandi, skemmtilegt og ríkulegt.“ View this post on Instagram A post shared by Ju li anna O sk Hafberg (@julohaf) Bleik afmæliskaka Öll eru velkomin á opnunina sem verður á sama tíma listræn afmælisveisla. „Í tilefni af þrítugsafmælinu mínu núna síðastliðinn sunnudag ákvað ég að slá opnuninni upp í afmælisopnun. Það verður að sjálfsögðu bleik afmæliskaka og bleikt límonaði í boði, mikil gleði og allir hjartanlega velkomnir. Hér munu hlutir fæðast svo það verður alltaf eitthvað nýtt að sjá í hverri heimsókn.“
Myndlist Menning Tengdar fréttir „Hin lifandi list er auðvitað bara lífið sjálft“ Listmálarinn Margrét Jónsdóttir stendur fyrir sýningunni ÓBÆRILEGUR LÉTTLEIKI TILVERUNNAR í Gallerí Gróttu. Í list sinni er hún stöðugt að túlka það sem hún skynjar í umhverfinu, þjóðfélagsstöðu sinni og samfélaginu. 3. ágúst 2022 15:45 Hefur öðlast styrk, skilning og getu til þess að mæta tilfinningunum Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar sýninguna „Feelings served; table for one“ í dag klukkan 17:00. Sýningin er haldin í Núllinu, listagalleríi neðanjarðar á Bankastræti 0. Undanfarna daga hefur Júlíanna verið í óða önn við að breyta hráu rýminu í undraheim en blaðamaður heyrði í henni hljóðið. 16. mars 2022 14:31 „Fötin eiga að passa á okkur en ekki við í fötin“ Myndlistarkonan Júlíanna Ósk Hafberg er lausnamiðuð þegar það kemur að því að endurnýta föt og leggur áherslu á að laga flíkurnar sínar ef eitthvað kemur fyrir þær, frekar en að henda þeim. 6. febrúar 2022 12:01 Vill gera listina aðgengilegri með sýningum í heimahúsum Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar listasýningu í Gallerí Heima laugardaginn 4. desember og er þetta fyrsti viðburður í áhugaverðu ferli listakonunnar. 3. desember 2021 16:31 Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Má gæi úr Húsasmiðjunni vera á listanum þínum? Lífið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Lífið Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Tara Sif og Elfar selja íbúðina Lífið Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Lífið Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Lífið Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Lífið Reykti pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira
„Hin lifandi list er auðvitað bara lífið sjálft“ Listmálarinn Margrét Jónsdóttir stendur fyrir sýningunni ÓBÆRILEGUR LÉTTLEIKI TILVERUNNAR í Gallerí Gróttu. Í list sinni er hún stöðugt að túlka það sem hún skynjar í umhverfinu, þjóðfélagsstöðu sinni og samfélaginu. 3. ágúst 2022 15:45
Hefur öðlast styrk, skilning og getu til þess að mæta tilfinningunum Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar sýninguna „Feelings served; table for one“ í dag klukkan 17:00. Sýningin er haldin í Núllinu, listagalleríi neðanjarðar á Bankastræti 0. Undanfarna daga hefur Júlíanna verið í óða önn við að breyta hráu rýminu í undraheim en blaðamaður heyrði í henni hljóðið. 16. mars 2022 14:31
„Fötin eiga að passa á okkur en ekki við í fötin“ Myndlistarkonan Júlíanna Ósk Hafberg er lausnamiðuð þegar það kemur að því að endurnýta föt og leggur áherslu á að laga flíkurnar sínar ef eitthvað kemur fyrir þær, frekar en að henda þeim. 6. febrúar 2022 12:01
Vill gera listina aðgengilegri með sýningum í heimahúsum Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar listasýningu í Gallerí Heima laugardaginn 4. desember og er þetta fyrsti viðburður í áhugaverðu ferli listakonunnar. 3. desember 2021 16:31