Aidan Louw, fyrrum starfsmaður á verkstæði Aston Martin, greinir frá því í viðtali við Sky Sports hvernig hann varð fyrir fordómum bæði vegna samkynhneigðar og vegna kynþáttar.
A Formula 1 worker who was repeatedly racially abused by colleagues at the Aston Martin F1 team says the sport must do more to confront racism. pic.twitter.com/AlwK2PI4Az
— Sky Sports F1 (@SkySportsF1) July 15, 2022
„Áður en ég labbaði á vinnustaðinn þá var ég látin vita af því að menn töluðu með öðrum hætti á þessum vinnustað og ég ætti ekki að láta það vera vandamál,“ sagði Louw í viðtalinu.
Louw, sem hefur ættir að rekja til Suður-Afríku, lýsir því meðal annars að samstarfsaðilar sínir hafi ítrekað reynt að niðurlægja sig og brjóta sig niður.
„Ég sagði samstarfsmanni frá því að ég hefði átt kærasta á unglingsárum og það var nóg, á þessari sekúndu breyttist allt. Um leið og þau komust yfir þessar upplýsingar þá voru þau stanslaust að reyna að niðurlægja mig sem einstakling og manneskju,“ sagði Louw.
Aston Martin gaf út á föstudaginn að umræddir aðilar væru ekki lengur starfandi hjá liðinu. Forráðamenn Aston Martin sögðu jafnframt við The Race að Louw starfaði aðeins í fimm vikur fyrir liðið vegna lélegra mætingar í vinnu. Louw tekur undir þetta en segir lélega mætingu vera vegna slæms andrúmslofts á vinnustaðnum
Fordómar virðast algengir í akstursíþróttinni en Formúla 1 hefur undanfarið verið að reyna að eyða fordómum úr íþróttinni. ökuþórinn Lewis Hamilton hefur verið duglegur að láta í sér heyra.