Enginn bjór beint frá býli strax en bruggarar brosa sínu breiðasta Árni Sæberg skrifar 30. júní 2022 17:17 Laufey Sif Lárusdóttir er formaður Samtaka handverksbrugghúsa. Aðsend Lög sem heimila sölu áfengis beint af framleiðslustað smáframleiðenda taka gildi á morgun. Reglugerð sem heimild mun byggja á er ekki tilbúin og því er ljóst að hvorki bjór né vín verður afhent neytendum beint frá brugghúsi á morgun. Reykjavíkurborg er þó þegar byrjuð að undirbúa útgáfu leyfa.
Margir fögnuðu dátt þegar alþingi samþykkti breytingu á lögum um áfengi sem heimilaði sölu áfengis beint frá framleiðslustað. Sumir hafa talað um að morgundagurinn, 1. júlí, verði bjórdagurinn hinn síðari í minnum margra. Lögin hafa ekki tekið breytingum frá 1989 þegar sala bjórs var leyfð. Flestir bruggarar voru þó hóflega vongóðir með að geta hafi sölu strax á morgun. Þeirra á meðal er Laufey Sif Lárusdóttir, formaður Samtaka handverksbrugghúsa og einn eigenda brugghússins og veitingastaðarins Ölverk í Hveragerði. Hún segir að hún hafi ekki fengið neitt veður af því að umsóknareyðublöð, sem bruggarar þurfa að nálgast hjá sýslumanni og skila inn útfylltu til síns sveitarfélags, séu tilbúin. Því sé nokkuð ljóst að leyfi fáist ekki fyrir morgundaginn. Það spillir þó ekki gleði bruggara handverksáfengis. „Við höfum auðvitað fullan skilning á því að það er hásumar og helsti sumaleyfatíminn núna,“ segir Laufey Sif. Þá segir hún að það sé mikilvægt að vandað verði við gerð reglugerðarinnar varðandi söluna. Þegar byrjuð að undirbúa sig Hún segir þó að bruggarar sitji ekki auðum höndum. „Til þess að liðka fyrir og vinna forvinnu fyrir þessar umsóknir hafa aðilar í samtökunum sent sínum sveitarstjórnum tölvupóst þar sem þeir tilkynna viðkomandi sveitarfélagi að þeir hafi í hug að sækja um tilskilin leyfi vegna lagabreytinganna sem taka gildi 1. júlí,“ segir hún. Þannig sé hægt að veita sveitarfélögum tækifæri til að setja sig inn í málin áður en formleg umsókn berst. Reykjavíkurborg hefur þegar hafið slíka forvinnu að sögn varaborgarfulltrúans Pawels Bartoszek.Hann segir í samtali við Vísi að borgin hafi lagt sérstaka áherslu á að vinna forvinnu og vera tilbúin til að bregðast hratt við þegar umsóknir byrja að berast. „Bruggarar eru hvattir til að hafa samband við borgina. Það er mín einlæga ósk að þetta gerist sem hraðast,“ segir hann. Þá segir hann að líklega muni ekki taka langan tíma að afgreiða leyfisumsóknir, sér í lagi fyrir þau brugghús sem þegar hafa vínveitingarleyfi en þau eru fjölmörg í Reykjavík. Vilja ekki fara í lögskýringarfimleika Laufey segir að bruggarar innan Samtaka handverksbrugghúsa ætli sér ekki að hefja sölu áfengis beint frá framleiðslustað með því að nýta sér mögulegar glufur í lögunum. „Það er alveg ljóst að það er enginn að fara af stað í söluna löglega núna 1. júlí. Aðilar í samtökunum starfa algjörlega eftir íslenskum lögum, við erum ekki að fara á svig við lögin, við viljum ekki túlka lögin og afskræma þau í okkar hag. Við höfum aldrei unnið þannig líkt og aðrið aðilar eru að vinna hér í samfélaginu og við sjáum mikið í fréttum þessa dagana. Samtökin standa meðal annar fyrir gæði og ekki síður fagmennsku í alla staði,“ segir hún. Væri gaman að byrja fyrir verslunarmannahelgi Laufey Sif segir að þrátt fyrir að skrifræði í kringum leyfisveitingu fyrir sölu áfengis beint af framleiðslustað sé nokkuð segir hún að bruggarar séu öllum hnútum kunnugir í þeim efnum. „Þannig að við erum ekki reið, við erum alltaf að fagna. Við erum í bjóriðnaðnum, það er alltaf gaman hjá okkur. Þetta er ekki flókið. Við erum í iðnaði sem er mjög blómlegur og hópurinn er mjög samheldinn. Þó við fáum ekki 1. júlí þá er nóg af öðrum dögum sem við getum tekið undir heljarinnar húllumhæ, hvort sem það verður síðsumars eða í haust,“ segir Laufey en játar þó að það væri skemmtilegt að geta byrjað sölu beint frá býli fyrir verslunarmannahelgi. Þá segir hún að bruggarar hlakki til að taka við ferðamönnum, bæði innlendum og erlendum, og selja þeim sína framleiðslu út úr húsi innan skamms og nefnir einnig hið nýútgefna bjórvegabréf sem má nálgast í brugghúsum sem heyra undir Samtök smábrugghúsa.
Áfengi og tóbak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira