Stewart er nú 83 ára gamall en hann vann þrjá heimsmeistaratitla í formúlu eitt frá 1969 til 1973.
Goðsögnin sagði það synd að Hamilton sé ekki þegar hættur en Stewart telur það nauðsynlegt fyrir Hamilton til að varðveita arfleifð sína.
Lewis Hamilton hefur unnið sjö heimsmeistaratitla á ferlinum eða jafnmarga og Michael Schumacher vann á sínum tíma.
'I think it s time for him to resign. He s got music, he s got culture, he loves clothing and the rag trade would be absolutely suitable for him'
— Telegraph Sport (@TelegraphSport) June 23, 2022
Sir Jackie Stewart urges Lewis Hamilton to retire from F1 | @tomcary_tel https://t.co/bcrrDS1VIY
Hann var grátlega nálægt því að vinna þann áttunda á síðasta tímabili en missti heimsmeistarann Max Verstappen fram úr sér í lok síðasta mótsins undir mjög umdeildum kringumstæðum.
Það hefur hins vegar ekkert gengið hjá Hamilton á þessu tímabili en hann er 34 stigum á eftir liðsfélaga sínum George Russell og heilum 98 stigum á eftir Verstappen sem er efstur.
„Hann er í smá vandræðum af því að hann er kominn með nýjan liðsfélaga sem er hefur verið fljótari en hann í tímatökunni á þessu ári sem er erfitt fyrir hann að sætta sig við,“ sagði Jackie Stewart.
„Ég held að það sé kominn tíma fyrir hann að hætta. Hann er með tónlistina, elskar föt, og er með fatalínu en sá heimur ætti að henta honum vel. Ég er viss um að hann nær góðum árangri þar,“ sagði Stewart.
„Lewis er kominn í hóp með köppum eins og Ayrton Sennas, Alain Prost og jafnvel Jackie Stewart líka. Hann fór fyrir sportinu í langan tíma og gerði það vel. Það er synd að hann hætti ekki á toppnum en það gerist ekki úr þessu. Það er samt betra fyrir hann að segja þetta gott núna í stað þess að upplifa sársaukann að ná ekki að gera það sem hann gerði áður,“ sagði Stewart.
Það hefur þó ekki verið neinn uppgjafartónn í Lewis Hamilton þrátt fyrir slakt gengi og hann komst á verðlaunapalli í síðasta kappakstri.