Lífið

Sápuóperur: 65 ár í sama hlutverkinu, stökkpallur og rokkari

Elísabet Hanna skrifar
Katherine Kelly Lang hefur farið með hlutverk Brooke Logan í þáttunum Bold and the Beautiful í 35 ár. Það sama má segja um John McCook sem fer með hlutverk Eric Forrester.
Katherine Kelly Lang hefur farið með hlutverk Brooke Logan í þáttunum Bold and the Beautiful í 35 ár. Það sama má segja um John McCook sem fer með hlutverk Eric Forrester. Instagram

Sápuóperur eiga það til að fanga hug og hjörtu aðdáenda sinna sem byrja að tengja við persónurnar sem fylgja áhorfendum í fjölda ára. Í tilefni þess að Nágrannar eru að segja skilið við skjáinn er tilvalið að líta til baka og sjá hvaða persónur hafa verið lengst á skjánum hjá þeim og í sambærilegum þáttum.

Nágrannar kveðja

Nágrannar eru að kveðja skjáinn eftir að hafa fyrst komið í sviðsljósið árið 1985 og mun síðasti þátturinn fara í loftið í ágúst. Í síðustu viku lauk tökum á þáttunum og kveðja því Paul, Susan, Toadie og Karl í síðasta sinn.

Stefan Dennis hefur verið í hlutverki sínu sem Paul Robinson síðan þættirnir hófu göngu sína en Alan Fletcher kom inn tveimur árum síðar hefur leikið Karl Kennedy síðan þá. Það var væntanlega erfitt fyrir þá að kveðja persónurnar.

Frá Ramsey street yfir í Hollywood

Þættirnir hafa alið af sér suma af stærstu Hollywood stjörnum nútímans en það má helst nefna Margot Robbie, Russell Crowe, Kylie Minogue, Liam Hemsworth og ekki má gleyma Alan Dale sem hefur verið að gera góða hluti í öðrum sjónvarpsseríum og fór meðal annars eftirminnilega með hlutverk Calebs Nichol í The O.C.

Í sama hlutverkinu í 65 ár

Breska útvarps sápuóperan The Archers virðist bjóða upp á góðan vinnustað og fór upphaflega í loftið árið 1950. Leikkonan Patricia Greene kom inn í þættina í hlutverki sínu sem Jill Archer árið 1957 og starfar enn við það í dag. 

Leikkonan June Spencer byrjaði í þáttunum um leið og þeir fóru í loftið sem Peggy Woolley en tók sér þó nokkurra ára pásu og kom aftur sem ný persóna, Rita Flynn. Hún fagnaði hundrað ára afmælinu sínu fyrir nokkru síðan en er enn í hlutverkinu sínu í dag 102 ára gömul.

Sápuóperan Coronation Street hefur einnig náð að halda fast í breska leikarann William Roache sem fer með hlutverk Ken Barlow. William er í dag skráður í Guinness World Records sem sá leikari sem hefur verið í sama hlutverki í sjónvarpi í lengsta tímann en hann hefur verið í sínu hlutverki síðan þættirnir komu á skjáinn árið 1960. Patricia Greene er skráð með metið í útvarpssápuóperu.

Ósk Gunnarsdóttir á FM957 fór að skoða þær sápuóperur sem hafa haldið hvað lengst í stjörnunar sínar en klippuna má heyra í heild sinni hér að neðan:

Glæstar vonir

Bold and the Beautiful eða Glæstar vonir á góðri íslensku hefur verið afar vinsæl sápuópera meðal Íslendinga og er nýr þáttur sýndur á hverjum virkum morgni klukkan níu á Stöð 2. Þá hafa Brooke, Taylor og Ridge fylgt mörgum kynslóðum af aðdáendum þáttanna frá því að þeir hófu göngu sína árið 1987. 

Leikkonan Katherine Kelly Lang sem leikur Brooke Logan hefur farið með hlutverkið síðan þættirnir fóru fyrst í loftið fyrir 35 árum síðan. Það sama má segja um John McCook sem fer með hlutverk Eric Forrester.

Það eru eflaust margir sem muna eftir Ronn Moss sem fór með hlutverk Ridge Forrester til ársins 2015 þegar hann hætti. Það vita þó ekki allir að hann er einnig tónlistarmaður og sinnir þeirri ástríðu heilshugar í dag.

Þekktir einstaklingar sem hafa farið með hlutverk í þáttunum eru meðal annars Denise Richards, Usher, Mario Lopez og Gina Rodriguez.


Tengdar fréttir

Tárin féllu þegar Nágrannar kvöddu

Búið er að taka upp síðasta atriðið í áströlsku sápuóperunni Nágrönnum sem eru að hætta eftir 37 ár í sjónvarpi. Tárin féllu þegar Nágrannanir sögðu bless.

Íslendingar fá ekki nóg af Glæstum vonum

„Þessir þættir eru einfaldlega of vinsælir hérna til að hætta sýningum á þeim,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs Stöðvar 2, um sápuóperuna Bold and the Beautiful.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.