„Þessi verk byggjast aðallega á minningum, ferðum um landið með ömmu og afa og svoleiðis sem ég svo túlka á minn eigin hátt. Útkoman er einhvers konar nútíma landslag, ekki beint raunverulegt en oft er hægt að ímynda sér aðstæður í verkunum, náttúran er svo merkilegt fyrirbæri,“ segir Elli.
Hann langar til að verk sín geti þjónað tilgangi sem minningar fyrir komandi kynslóðir.
„Málarar fyrri tíma hafa skilið eftir sig stórbrotin listaverk sem lýsa því hvernig þeir sáu heiminn í kringum sig, veröld sem þá var.
Mig langar að skilja eftir mig mína sýn, mitt sjónarhorn á náttúrunni og óbyggðum landsins, fyrir komandi kynslóðir að upplifa og njóta.“
Andstæðan hreyfir við
Viðfangsefnið er afmarkað en á sama tíma fjölbreytt.
„Þessi sýning, NEVADA, snýst um sama form af fjallstoppum í mismunandi litum og dýpt. Verkin eru skírð eftir götunum sem ég keyri daglega frá heimilinu okkar á vinnustofuna, einhvern veginn fannst mér ekkert annað passa þegar ég púslaði conceptinu saman.“
Elli segist lítið hafa málað á Íslandi.
„Kannski einhver sex eða sjö verk hafa verið máluð á Íslandi, en það er nefnilega þessi andstæða í loftslaginu sem hreyfir svo mikið við mér, þegar maður þarf að ímynda sér ískalt veðurfar í fjörutíu stiga hita í Las Vegas, eitthvað algjörlega töfrandi gerist.“
Sérpöntun fyrir The Weeknd
Það er ýmislegt spennandi í gangi í listsenunni vestanhafs en tónlistarmaðurinn The Weekend fékk Ella meðal annars til að mála verk sérstaklega handa sér.
„Ég er búinn að þekkja Abel (The Weeknd) og alla strákana sem eru partur af hans batteríi alveg frá 2006. La Mar vinur minn er besti vinur hans og creative director-inn hans. Hann vildi endilega gera sérpöntun og gefa Abel verkið í þrítugsgjöf í hitt í fyrra. Verkið hangir uppi í 70 milljón dollara mansion-inu hans í Bel Air, sem er gjörsamlega tryllt,“ segir Elli.
Sýningin opnar sem áður segir í dag og verður uppi til 19. júní. Gallerí Þula er staðsett á Hjartatorgi, 101 Reykjavík.