Man. United í fleiri daga á toppnum en Liverpool á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2022 12:30 Cristiano Ronaldo fagnar einu marka sinna með Manchester United liðinu á þessu tímabili. Getty/Naomi Baker Liverpool var hársbreidd frá því að vinna enska meistaratitilinn en þrjú mörk Manchester City í lokin tryggðu liðinu sigur á Aston Villa og eins stigs forskot á Liverpool.
Liverpool endaði meðal annars 34 stigum á undan Manchester United sem varð að sætta sig við sjötta sætið á þessu tímabili. Vissulega mikil vonbrigði fyrir United sem meðal annars tapaði tveimur innbyrðis leikjum sínum á móti Liverpool með samtals níu marka mun eða 0-5 og 1-5. Það var hins vegar ein tölfræði sem var United í hag í samanburði við Liverpool og sú staðreynd er eflaust svolítið sár lestur fyrir stuðningsmenn Liverpool. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc) Liverpool átti auðvitað miklu betra tímabil en erkifjendur þeirra en þegar kom að því að vera á toppnum þá voru Old Trafford menn þeim fremri. Manchester United var nefnilega þremur dögum lengur í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili heldur en Liverpool. United menn voru efstir í fjórtán daga. Manchester United náði toppsætinu bæði eftir 5-1 sigur á Leeds United í fyrstu umferðinni sem og eftir 4-1 sigur á Newcastle í fjórða leik. Liverpool sat aftur á móti í toppsætinu í aðeins ellefu daga á þessari leiktíð. Ótrúleg staðreynd en kristallar vissulega það að Manchester City stakk af í byrjun móts. Liverpool var fjórtán stigum á eftir City í byrjun nýs árs og var næstum því búið að vinna upp muninn með flottum endaspretti.
Enski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Orri í Belgíu og fjórir leikir í Bónus-deildinni Sport Fleiri fréttir Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Sjá meira