Lífið

Speglar úr stáli vekja athygli

Helgi Ómarsson skrifar
Eigendur Mikado Einar Guðmundsson, Aron Freyr með Theodóru Alfreðs
Eigendur Mikado Einar Guðmundsson, Aron Freyr með Theodóru Alfreðs Helgi Ómars/Vísir

Vöruhönnuðurinn Theodóra Alfreðsdóttir hélt sýninguna „Speglar“ í versluninni Mikado á Hverfisgötu. Speglarnir eru fyrstu vörurnar í stærra verkefni efnistilrauna. 

Theodóra valdi einstaklega fallega verslun að sína verk sín, en speglarnir samspiluðu sér fullkomnlega í litasamsetningu búðarinnar og stemmningin á opnun sýningarinnar einstaklega hugguleg fyrir augu, eyru og lyktarskyn. 

Það vakti athygli að Theodóra notar ryðfrítt stál sem yfirborðið er pússað þar til stálið nær fram kristal tærri endurspeglun og blandar svo saman með annarsskonar áferð á stálinu.

Gestir á sýningu Theódóru Alfreðs þar sem hún kynnti til leiks nýja línu af speglum.Helgi Ómars/Vísir
Verslun Mikado á HverfisgötuHelgi Ómars/Vísir
Theódóru Alfreðs þar sem hún kynnti til leiks nýja línu af speglum.Helgi Ómars/Vísir
Sýning Theódóru Alfreðs þar sem hún kynnti til leiks nýja línu af speglum.Helgi Ómars/Vísir
Theódóru Alfreðs þar sem hún kynnti til leiks nýja línu af speglum.Helgi Ómars/Vísir

HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar

Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  

Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.