Lífið

Oddvitaáskorunin: Festist í handmokaðri gröf

Samúel Karl Ólason skrifar
20190405_190402

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Hjálmar Bogi Hafliðason leiðir lista Framsóknar í Norðurþingi í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Ég heiti Hjálmar Bogi Hafliðason og er 42 ára sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi. Bý með Guðnýju Þóru Guðmundsdóttur og þremur börnum hennar í einu elsta húsinu á Húsavík. Er menntaður grunnskólakennari og lengst af starfað sem kennari og síðustu ár sem deildarstjóri í Borgarhólsskóla á Húsavík. Syng í kirkjukórnum og karlakórnum, er félagi í björgunarsveitinni Garðar, sit í svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 12 og í aðgerðarstjórn almannavarna. Félagi í Leikfélagi Húsavíkur og finnst fátt eins gaman og að fara á svið til að gleðja. Spila golf og var í nokkur ár formaður Golfklúbbs Húsavíkur. Forgjöfin er há enda fyrst og fremst sport til að njóta útiveru og góðrar samveru. Hef unun af því að vera úti í náttúrunni, gangandi, á snjósleða eða gönguskíðum.

Hef verið í framboði síðan 1998 þegar ég var í framboði til sveitarstjórnar þá í 13. sæti. Leiði nú lista Framsóknar í annað sinn. Hef hinsvegar oftar verið í framboði þegar það eru kosningar en ekki en sat sem varaþingmaður frá 2013 til 2020. Síðan 2006 hef ég starfað í nefndum og ráðum á vegum ríkis og sveitarfélaga og fór fyrst í sveitarstjórn árið 2010. Það má segja að ég hafi talsverða reynslu af stjórnmálum og þekki söguna ágætlega.

Umfram allt finnst mér gaman að láta gott af mér leiða; að gleðja aðra með eigin nærveru og vinnu. Að vera með öðru fólki, deila áhugamálum og rökræða landsins gagn og nauðsynjar.

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Gönguleiðin frá Dettifossi í Jökulsárgljúfrum sem endar fram á bjargbrún Ásbyrgis er stórbrotin upplifun.

Er eitthvað lítilvægt sem fer þó í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt að sé lagað?

Prinsessan svaf reyndar ekki fyrir bauninni en kirkjustiginn milli hafnar og Húsavíkurkirkju skal komast í lag.

Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið?

Staddur á kórloftinu milli sálma að telja hversu margar perur virka ekki í Húsavíkurkirkju.

Hver eru þín minnistæðustu samskipti við lögregluna?

Starfa með henni í aðgerðarstjórn Almannavarna á svæðinu en við aðalvarðastjórinn ræðum gjarnan um hvað við eigum að borða á vaktinni.

Hvað færðu þér á pizzu?

Yfirleitt aldrei það sama og gjarn á að prófa eitthvað nýtt.

Hvaða lag peppar þig mest?

Það er með The pointer sisters - I'm so excited, virkar alltaf.

Hvað getur þú tekið margar armbeygjur?

Geri 25 armbeygjur á hverjum morgni þegar ég vakna. Hef ekki reynt að gera fleiri.

Göngutúr eða skokk?

Allan tíman í göngu enda hleyp ég eins og górilla.

Uppáhalds brandari?

Stíllinn í eyranu

Gamall maður á níræðisaldri sat í afmælisboði innan um fullt af fólki. Skyndilega finnur hann fyrir sviða í öðru eyranu og þegar hann fer að klóra sér í eyranu finnur hann fyrir einhverju, jú og viti menn hann dregur eitthvað út úr því og þegar hann skoðar hvað þetta er þá sér hann að þetta er stíll. Fólkið í boðinu starir furðu lostið á aðfarirnar. Eftir smá umhugsun snýr sá gamli sér að fólkinu og segir: „andskotinn, jæja …. þá veit ég hvar heyrnatækið er“.

Hvað er þitt draumafríi?

Óundirbúið á meginlandi Evrópu. Gerist reglulega. Langar hinsvegar hátt upp í Alpana, í trjákofa með kveikt upp í kamínunni og kakóbolla í tunglskini.

Hvort fannst þér 2020 eða 2021 vera verra ár?

Þessi tími er eitt covid-19 ár. Homeblest, gott báðu megin.

Uppáhalds tónlistarmaður?

Verð að segja John Willams, kvikmyndatónskáld enda höfundurinn að tónlistinni í Star Wars. En held hinsvegar mikið upp á KK.

Hvað er það skrýtnasta sem þú manst eftir að hafa gert?

Starfaði lengi við Kirkjugarða Húsavíkur bæði á sumrin og í afleysingum árið um kring. Á þeim tíma þegar grafir voru handmokaðar. Sérstaklega í gamla hlutanum. En að taka gröf að vetrarlagi í mykri með eitt vasaljós á jörðinni, einn ofan í gröfinni og vera langt kominn þegar hún fellur saman og opnast inn í næstu gröf. Standa þar fastur og kalla á hjálp út í tómið.

Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Má vera íslenskur eða útlenskur.

Útlit Jason Alexander og atferli Michael Richards í Seinfeld.

Hefur þú verið í verbúð?

Fæddur 1980, nei, ekki til að upplifa Verbúð nema til skoðunar.

Áhrifamesta kvikmyndin?

Sem söguunnandi verð ég að segja Schindler's list. Horfi á hana einu sinni á ári.

Áttu eftir að sakna Nágranna?

Eru þeir að hætta?

Ef þú yrðir að flytja úr þínu sveitarfélagi, hvert myndir þú helst vilja fara?

Frábær spurning fyrir sveitarstjórnarfulltrúann; að leiða hugann öðru eftirsóknarverðu sveitarfélagi. Nefni Sauðárkrók, fylgist með stöðu mála þar og ber okkur í Norðurþingi gjarnan saman við bæinn.

Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla)

Var píndur á tónleika með Slipknot fyrir nokkru. Fer ekki sjálfviljugur aftur á slíka tónleika en eitt og eitt lag situr eftir. Ekki til spilunar þó, Vermilion sem fjallar um konuna á lestarstöðinni, held ég.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.