Inter býður AC Milan upp á meistaratitilinn Atli Arason skrifar 27. apríl 2022 20:15 Lautaro Martinez, leikmaður Inter Milan, sefur sennilega ekki vel í nótt. Getty Images Inter var sjálfum sér verst í kvöld er þeir töpuðu mjög óvænt á móti Bologna á útivelli, 2-1. Tapið heggur skarð í titilvonir liðsins.
Inter komst yfir á 3. mínútu leiksins með marki Ivan Perisic eftir frábært einstaklingsframtak. Lautaro Martinez fékk a.m.k. tvö tilvalin tækifæri til að bæta við öðru marki eftir mark Perisic en skot hans fóru framhjá markinu. Þau klúður áttu svo eftir bíta Inter í rassinn þar sem Marko Arnautovic stýrði fyrirgjöf Musa Barrow í netið til að jafna leikinn á 28. mínútu og staðan var jöfn í hálfleik. Eftir klukkutíma leik bættu gestirnir í sóknarlínuna þegar bæði Edin Dzeko og Alexis Sanchez komu inn á völlinn. Það gekk þó ekki betur en svo að Inter var of þunnt til baka og Bologna nýtti sér það með því að skora sigurmarkið þegar Nicola Sansone, framherji Bologna, nýtti sér mistök Ionut Radu, markvarðar Inter, og skoraði í autt netið. Fyrsta tap Inter í meira en tvo mánuði staðreynd og vonir þeirra að verja meistaratitilinn komnar í uppnám. Inter er nú tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum í AC Milan þegar einungis fjórar umferðir eru eftir.
Ítalski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Sjá meira