Tíu látnir og sextán er saknað eftir að bátur sökk við strendur Japans Smári Jökull Jónsson skrifar 24. apríl 2022 09:46 Sjúkraflutningamenn flytja einstakling úr þyrlu japönsku strandgæslunnar og á sjúkrahús. Vísir/EPA Staðfest er að tíu eru látnir eftir að ferðamannabátur fórst við japönsku eyjuna Hokkaido í gær. Sextán er enn saknað.
Samkvæmt japönsku strandgæslunni barst neyðarkall frá ferðamannabátnum Kazu 1 um klukkan fjögur að íslenskum tíma aðfaranótt laugardags. Báturinn var með ferðamenn í útsýnissiglingu við Shiretoko skagann þegar tilkynning barst um að hann væri að sökkva. Bátsferðir eru vinsælar á þessum slóðum enda skaginn á heimsminjalista UNESCO. Tuttugu og sex ferðamenn voru um borð. Tíu hafa fundist látnir og þá er sextán enn saknað. Tvö börn voru um borð. Kazu 1 sökk við strendur Japans í gær.Vísir/EPA Áhöfn Kazu 1 náði að senda neyðarkall um að kominn væri þrjátíu gráðu halli á bátinn og að hann væri farinn að leka. Eftirlitsbátur var strax sendur á vettvang auk lögreglu- og herþyrla. Bátar á svæðinu tóku einnig þátt í leitinni. Oft tekur langan tíma að fá fregnir um staðfest dauðsföll í kjölfar slysa eða náttúruhamfara þar sem meinafræðingur þarf að staðfesta dauðsföllin. Sjórinn á þessum slóðum er afar kaldur og getur farið niður í núll gráður yfir nóttina.
Japan Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira