Lífið

Céline Dion á leið á hvíta tjaldið

Elísabet Hanna skrifar
Celine Dion leikur í sinni fyrstu kvikmynd sem kemur út í byrjun næsta árs.
Celine Dion leikur í sinni fyrstu kvikmynd sem kemur út í byrjun næsta árs. Getty/Simone Joyner

Céline Dion aðdáendur geta verið spenntir þar sem söngkonan mun koma fram í kvikmynd í byrjun næsta árs en tónlist frá söngkonunni spilar einnig stórt hlutverk. Þetta veður í fyrsta skipti sem Dion leikur í mynd og ber hún heitið It's All Coming Back to Me.

Byggð á þýskri mynd

Samkvæmt Variety fara Priyanka Chopra Jonas og Sam Heughan fara með aðalhlutverk í myndinni sem er endurgerð á þýsku myndinni „SMS für Dich“ eftir Karoline Herfurth. Aðrir leikarar í myndinni eru meðal annars Russell Tovey, Omid Djalili,Celia Imrie og Céline Dion sjálf. Myndinni er leikstýrt af Jim Strouse.

Verða ástfangin í gegnum sorgina

Myndin er rómantísk dramamynd og segir sögu ekkju sem Priyanka leikur. Hún byrjar að senda skilaboð á gamla símanúmer unnustans sem hún missti og á hinum enda símanúmersins er nú annar maður sem er að ganga í gegnum sambærilega hluti. Persónurnar verða ástfangnar þökk sé tónlist og áhrifa frá Dion.

Nýtt lag á leiðinni

Það er enn óljóst hvort að hún leiki sjálfa sig eða einhverja aðra persónu í myndinni en hún virðist vera ástæða þess að ástin kviknar hjá aðalpersónunum. Það hefur einnig verið gefið út að hún sé búin að taka upp nýtt lag fyrir myndina. 


Tengdar fréttir

Priyanka Chopra og Nick Jonas gift

Indverska Bollywood ofurstjarnan Priyanka Chopra og bandaríski poppsöngvarinn Nick Jonas eru gengin í það heilaga. Parið hefur verið trúlofað síðustu fjóra mánuði eftir að hafa átt í eins árs sambandi fyrir það.

Dion snýr aftur í ágúst

Stórsöngkonan Céline Dion hefur tilkynnt að hún muni halda tónleika aftur í Las Vegas í ágúst á þessu ári. Í fyrra þurfti hún að aflýsa tónleikum vegna veikinda eiginmanns hennar, Réne Angélil, en hann berst við krabbamein í hálsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.