Lífið

Arna Ýr og Vignir selja íbúðina í Kópavogi

Elísabet Hanna skrifar
Arna Ýr og Vignir selja heimilið sitt.
Arna Ýr og Vignir selja heimilið sitt. Samsett/ Fasteignaljósmyndun.is

Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir og kírópraktorinn Vignir Þór Bollason eru að selja eignina sína í Kópavogi og ætla í framhaldinu að flytja sig yfir í Urriðaholtið. Íbúðin sem er staðsett í Álfkonuhvarfi er 97 fermetrar og er ásett verð 69,9 milljónir.

Í eigninni eru tvö svefnherbergi en Arna Ýr greindi frá því á samfélagsmiðlu sínum að fjölskyldan sé að flytja sig yfir í Garðabæinn. Þar verða bæði börnin með sitt herbergi en saman eiga þau Ástrósu Mettu og Nóa Hilmar.

Hér má nálgast frekari upplýsingar um eignina. 

Íbúðin er björt og fallega innréttuð.Fasteignaljósmyndun.is

Stofan er björt og góðar svalir.Fasteignaljósmyndun.is

Fallegt barnaherbergi sem börnin deila.Fasteignaljósmyndun.is

Baðherbergið er grátt og stílhreint.Fasteignaljósmyndun.is

Eldhús og borðstofa er aðliggjandi.Fasteignaljósmyndun.is

Tengdar fréttir

Katrín og Jón Bjarni selja íbúðina í Urriðaholti

Katrín Ólafsson og Jón Bjarni Steinsson hafa sett íbúð sína í Urriðaholti á sölu. Hjónin eru eigendur og veitingamenn á Dillon og Pablo Discobar og á nýja staðnum í Urriðaholti sem ber nafnið 212 .

Berglind Festival selur risíbúðina

Fjölmiðlakonan Berglind Pétursdóttir, oft kölluð Berglind Festival, er að selja íbúðina sína á Njálsgötu. Íbúðin er ótrúlega litrík og þar setja skrautlegar flísar sterkan svip.

Björt og falleg risíbúð á Bragagötu

Á Bragagötu í Reykjavík er nú til sölu einstaklega smekkleg íbúð. Þrátt fyrir að vera aðeins 59 fermetrar er hún vel skipulögð og hefur tvö svefnherbergi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.