Tónlist

Þessir listamenn koma fram á Hlustendaverðlaununum 2022

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hlustendaverðlaunin 2022 verða sannkölluð tónlistarveisla. Hátíðin fer fram næstkomandi laugardag. 
Hlustendaverðlaunin 2022 verða sannkölluð tónlistarveisla. Hátíðin fer fram næstkomandi laugardag. 

Næstkomandi laugardagskvöld, 19. mars, fara Hlustendaverðlaunin fram með pomp og prakt. Úrvalslið íslenskra tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni sem fer fram í Kolaportinu en rýmið mun skarta glænýju útliti þar sem öllu er tjaldað til. Hægt verður að fylgjast með hátíðinni í beinni útsendingu bæði á Stöð 2 og hér á Vísi.

Atriðin sem koma fram í ár eru átta talsins en þau eru:

Hljómsveitin Írafár. Þessi sögulega sveit er svo sannarlega enginn nýgræðingur í að koma fram. Það er gaman að segja frá því að fyrir tuttugu árum síðan vann Írafár flest verðlaun sem hafa verið unnin í sögu hátíðarinnar.

Aron Can. Hann er með fjórar tilnefningar í ár. Aron Can var fyrst tilnefndur til Hlustendaverðlauna árið 2017 þar sem hann hreppti titilinn Nýliði Ársins. Hann hefur svo sannarlega blómstrað í tónlistarheiminum síðan en plata hans ANDI, LÍF, HJARTA, SÁL kom út árið 2021 við góðar undirtektir.

Sigga Beinteins. Þessa kanónu þarf vart að kynna fyrir lesendum. Sigga Beinteins á einmitt 40 ára ferils afmæli í ár og mun heiðra gesti Hlustendaverðlauna með nærveru sinni og show-i.

Kælan mikla. Þessi pönk rokk hljómsveit er skipuð af Laufeyju Soffíu, Margréti Rósu Dóru-Harrýsdóttur og Sólveigu Matthildi Kristjánsdóttur sem eiga það sameiginlegt að vera hæfileikaríkar tónlistarkonur og ofur töffarar.

BRÍET. Hún er tilnefnd til þrennra verðlauna í ár. Þessi ástsæla söngkona var meðal annars valin söngkona ársins árið 2019 og 2021.

GDRN. Hún er tilnefnd í þremur flokkum á Hlustendaverðlaununum í ár en þessi hugljúfa poppstjarna vann meðal annars til verðlauna árið 2020 sem söngkona ársins.

Jón Jónsson. Hann kemur fram ásamt GDRN og munu þau að sjálfsögðu flytja lagið Ef ástin er hrein, sem var meðal annars vinsælasta lag ársins hjá útvarpsstöðvunum FM957 og Bylgjunni.

HUGO. Þessi dularfulli tónlistarmaður er tilnefndur sem Nýliði ársins á hátíðinni. Það eru eflaust margir sem forvitnast um það hver maðurinn á bak við villikatta grímuna sé og hver veit nema hann ákveði að afhjúpa það næstkomandi laugardag.

Miðasala fer fram inn á Tix.is en hana má nálgast hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.