Í fréttatilkynningunni kemur fram að fimm af sjö dómurum völdu Reykjavíkurdætur í fyrsta sæti. Reykjavíkurdætur unnu aðra undankeppnina fyrir lokakvöldið og Eyþórssystur unnu hina undankeppnina.
Lagið Með Hækkandi sól eftir Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur hlaut þó flest heildaratkvæði á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 12. mars og verður fulltrúi Íslands í Eurovision í maí. Lagið fékk samtals 77.380 atkvæði en lag Reykjavíkurdætra, Turn this around, hafnaði í öðru sæti með 69.227 atkvæði.
Systurnar Sigga, Beta og Elín sigruðu hið svokallaða einvígi gegn Reykjavíkurdætrum með yfirburðum en fram að einvíginu höfðu Reykjavíkurdætur nauma forystu, bæði í símakosningu almennings og hjá dómnefnd.
Hér fyrir neðan má sjá niðurstöður kosninganna í úrslitunum 12. mars og í undanúrslitunum 26. febrúar og 5. mars. Einnig verða skipting atkvæða dómnefndar á úrslitakvöldinu opinberuð og má sjá listann neðar í fréttinni.
Úrslitin 12. mars
Úrslitakeppni Söngvakeppninnar er tvískipt. Í fyrri hlutanum vega atkvæði alþjóðlegrar dómnefndar helming á móti símakosningu almennings. Tvö stigahæstu lögin komast áfram í einvígi og eru flutt aftur. Þá hefst önnur símakosning á meðal almennings en atkvæði dómefndar og almennings úr fyrri kosningunni fylgja þó báðum lögunum í einvígið.
Niðurstaða fyrri símakosningar í úrslitum 12. mars
- Reykjavíkurdætur - Turn This around: 26.320 atkvæði
- Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól: 24.083 atkvæði
- Amarosis - Don’t you know: 12.506 atkvæði
- Stefán Óli - Ljósið: 9.126 atkvæði
- Þaðan af - Katla: 5.972 atkvæði
Alþjóðleg dómnefnd, skipuð sjö aðilum, hafði 50% vægi á móti atkvæðum almennings úr fyrri símakosningunni.
Niðurstaða dómnefndar í úrslitum 12. mars
- Reykjavíkurdætur - Turn This around: 19.437 atkvæði
- Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól: 18.141 atkvæði
- Þaðan af - Katla: 15.031 atkvæði
- Stefán Óli - Ljósið: 13.476 atkvæði
- Amarosis - Don’t you know: 11.921 atkvæði
Heildarúrslit fyrri kosningar (símaatkvæði og atkvæði dómnefndar) 12. mars
- Reykjavíkurdætur - Turn This around: 45.757 atkvæði
- Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól: 42.224 atkvæði
- Amarosis - Don’t you know: 24.427 atkvæði
- Stefán Óli - Ljósið: 22.602 atkvæði
- Þaðan af - Katla: 21.003 atkvæði
Tvö stigahæstu lögin komust þá í hið svokallaða einvígi og hófst þá seinni símakosning kvöldsins á milli þeirra.
Úrslit seinni símakosningar (einvígis) 12. mars
- Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól: 35.156 atkvæði
- Reykjavíkurdætur - Turn This around: 23.470 atkvæði
Lagið Með hækkandi sól sigraði því keppnina með 8.153 atkvæðum.

Dómararnir
Hér að neðan má sjá hvernig hver dómari kaus en dómarar voru beðnir að raða lögunum í röð eftir gæðum, að mati hvers og eins.
Dómari 1
- 1. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól
- 2. Katla - Þaðan af
- 3. Stefán Óli - Ljósið
- 4. Reykjavíkurdætur - Tökum af stað
- 5. Amarosis - Don’t You Know
Dómari 2
- 1. Reykjavíkurdætur - Turn this around
- 2. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól
- 3. Amarosis - Don’t you know
- 4. Katla - Þaðan af
- 5. Stefán Óli - Ljósið
Dómari 3
- 1. Reykjavíkurdætur - Turn this around
- 2. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól
- 3. Stefán Óli - Ljósið
- 4. Katla - Þaðan af
- 5. Amarosis - Don’t you know
Dómari 4
- 1. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól
- 2. Katla - Þaðan af
- 3. Reykjavíkurdætur - Turn this around
- 4. Stefán Óli - Ljósið
- 5. Amarosis - Don’t you know
Dómari 5
- 1. Reykjavíkurdætur - Turn this around
- 2. Stefán Óli - Ljósið
- 3. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól
- 4. Amarosis - Don’t you know
- 5. Katla - Þaðan af
Dómari 6
- 1. Reykjavíkurdætur - Turn this around
- 2. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi Sól
- 3. Katla - Þaðan af
- 4. Amarosis - Don’t you know
- 5. Stefán Óli - Ljósið
Dómari 7
- 1. Reykjavíkurdætur - Turn this around
- 2. Katla - Þaðan af
- 3. Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól
- 4. Stefán Óli - Ljósið
- 5. Amarosis - Don’t you know
Undanúrslitakvöldin fyrir Söngvakeppnina voru tvö. Annað kvöldið unnu Sigga, Beta og Elín en hitt undanúrslitakvöldið unnu Reykjavíkurdætur. Hér fyrir neðan má sjá röðina að lokinni símakosningu í hvorri keppni.

Undanúrslit
Tíu lög tóku þátt í keppninni sem hófst á tveimur undanúrslitakvöldum, 26. febrúar og 5. mars. Fimm lög kepptu á hvoru kvöldi. Eingöngu símakosning á meðal almennings ræður úrslitum í undanúrslitunum, engin dómnefnd kýs þau kvöld.
Fyrri undanúrslit - Niðurstaða símakosningar 26. febrúar
- Sigga, Beta & Elín - Með hækkandi sól: 10.788 akvæði
- Stefán Óli - Ljósið: 7.017 atkvæði
- Amarosis - Don’t you know (íslenska útgáfan): 7.006 atkvæði
- Stefanía Svavarsdóttir - Hjartað mitt: 5613 atkvæði
- Haffi Haff - Gía: 4.828 atkvæði
Lögin Með hækkandi sól og Ljósið komust beint í úrslitin en Don’t you know (íslenska útgáfan) var valið “Eitt lag enn” og fékk því einnig sæti í úrslitakeppninni, en aðeins munaði 11 atkvæðum á því og laginu Ljósið þetta kvöld.
Seinni undanúrslit - Niðurstaða símakosningar 5. mars
- Reykjavíkurdætur - Tökum af stað: 13.137 atkvæði
- Katla - Þaðan af: 5251 atkvæði
- Suncity & Sanna Martinez - Hækkum í botn: 4.170 atkvæði
- Markéta - Mögulegt: 3.251 atkvæði
- Hanna Mia and the Astrotourists - Séns með þér: 3.197 atkvæði.
Lögin Tökum af stað og Þaðan af komust beint í úrslitin þetta kvöld.
„Framkvæmdastjórn Söngvakeppninnar þakkar keppendum kærlega fyrir glæsilega keppni og góð kynni og hlakkar til að taka á móti framúrskarandi, reyndum og óreyndum, tónlistarmönnum á næsta ári,“ er skrifað í fréttatilkynninguna. Undir hana skrifar framkvæmdastjórn Söngvakeppninnar 2022, þau Rúnar Freyr Gíslason, Gísli Berg, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Salóme Þorkelsdóttir.