Fleetwood og Hoge kláruðu báðir hringinn á sex höggum undir pari en það eiga mjög margir kylfingar eftir að klára fyrsta hringinn.
Round 1 @THEPLAYERSChamp was suspended at 11 a.m. ET due to dangerous weather in the area.
— PGA TOUR (@PGATOUR) March 10, 2022
More at the Weather Hub presented by @Travelers.
Eftir níu fullkomnar vikur á golfmótum á Flórída tóku veðurguðirnir sig til og settu mikinn svip á stærsta mótinu. Fyrst þurfti að byrja klukkutíma seinna en planað var og svo varð að gera aðra fjögurra tíma seinkun.
Þetta þýddi að fjölmargir kylfingar komust ekki af stað fyrir myrkur og þeir Rory McIlroy og Justin Thomas náðu bara að klára tvær holur. Justin Rose fékk fugla á fyrstu tveimur holunum en komst ekki lengra áður en keppni var hætt.
Fleetwood var með sjö fugla og einn skolla á hringnum en hann fékk fugl á bæði sextándu og átjándu. Hoge náði einum erni og þremur fuglum á fyrstu níu en lék síðan seinni níu bara á einu undir pari.
.@TommyFleetwood1 is out front.
— PGA TOUR (@PGATOUR) March 10, 2022
He leads by 1 @THEPLAYERSChamp. pic.twitter.com/95dqVW9KUo
Jafnir í þriðja sætinu á fimm höggum undir pari eru síðan þeir Kramer Hickok, Joaquin Niemann, Keith Mitchell og Anirban Lahiri.
Það eru liðin tvö ár síðan Tommy Fleetwood fagnaði sigri á PGA-móti og því verður fróðlega að fylgjast með honum í framhaldinu. Tom Hoge er sjóðheitur eftir sigurinn á Pebble Beach í síðasta mánuði sem var hans fyrsti sigur á PGA-móti.
Slæmu fréttirnar eru að það er vona að frekara þrumuveðri í dag og því gæti orðið erfitt að klára alla hringina fjóra um helgina. Keppni gæti því dregið langt inn á mánudaginn með sama áframhaldi.
Leaderboard when play was suspended:
— PGA TOUR (@PGATOUR) March 11, 2022
T1. @TommyFleetwood1 -6
T1. @HogeGolf
T3. @KramerHickok -5
T3. @JoacoNiemann
T3. @K_M_Mitchell
T3. @AnirbanGolf
T7. @HarmanBrian -4
T7. @SamBurns66
T7. @Abraham_Ancer
T7. @TaylorPendrith (*16)
T11. Eight players tied -3