Erlent

Vilja að rann­sókn á Netanja­hú verði látin niður falla vegna meintra njósna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Netanjahú hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu fyrir spillingu.
Netanjahú hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu fyrir spillingu. Amir Levy/Getty

Almannavarnaráðherra Ísraels hefur skipað sérstaka nefnd sem mun rannsaka meinta notkunn lögreglunnar á njósnabúnaði. Lögreglan á að hafa notað búnaðinn til að njósna um ýmsa framámenn, allt frá stjórnmálamönnum yfir í aðgerðasinna.

Dagblaðið Calcalist birti í dag frétt þar sem því var haldið fram að ísraelska lögreglan hafi verið að nota forritið Pegasus, sem hannað var af ísraelska fyrirtækinu NSO Group, til að fá aðgang að farsímum fólks án lagaheimildar. 

Meðal þeirra sem lögreglan á að hafa njósnað um er Avner Netanjahú, sonur fyrrverandi forsætisráðherrans Benjamíns Netanjahú, og aðrir trúnaðarmenn forsætisráðherrans fyrrverandi sem höfðu verið vitni í rannsókn lögreglu á Netanjahú fyrir spillingu.

 Omer Barlev, almannavarnaráðherra Ísraels, lýsti því yfir í dag að svona lagað myndi ekki viðgangast í hans valdatíð og skipaði í leiðinni sérstaka nefnd sem mun rannsaka málið. Minnst þremur öðrum ráðherrum þótti Barlev ekki ganga nógu langt og vildu að sjálfstæð nefnd myndi annast rannsókn málsins. 

Benjamín Netanjahú hefur að undanförnu verið til rannsóknar vegna spillingar en hann á að hafa aðstoðað ísraelskan fjölmiðlarisa í stað jákvæðrar umfjöllunar á meðan hann var í embætti. Þá hefur hann verið til rannsóknar vegna annars viðlíka máls og fyrir að hafa þegið gjafir, sem voru hundruð þúsunda dollara virði, frá ríkum kunningjum sínum. Lögmenn hans vilja nú að rannsókn málsins verði látin niður falla. 


Tengdar fréttir

Ör­lög Netanja­hús ráðast í dag

Ísraelska þingið mun greiða atkvæði um nýja ríkisstjórn í dag. Verði ríkisstjórnin samþykkt af meirihluta þingsins markar það endalok 12 ára stjórnartíð Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels.

Isaac Herzog er nýr forseti Ísraels

Isaac Herzog var kjörinn forseti Ísraels í dag og verður ellefti forseti landsins. Hann tekur við af Reuven Rivlin. Atkvæðagreiðsla var haldin á meðal 120 meðlima þingsins og hafði Herzog betur en fyrirlesarinn Miriam Peretz.

Netanyahu segist sak­laus af á­sökunum um spillingu

Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segist saklaus af ásökunum um spillingu. Mál hans hefst að nýju fyrir dómi í dag en aðeins sex vikur eru þar til kjósendur ganga til þingkosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×