Arsenal leikur í hvítu til að berjast gegn hnífaárásum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. janúar 2022 18:30 Arsenal mun leika í hvítum treyjum á sunnudaginn sem verða svo gefnar samtökum sem vinna í þágu samfélagsins að leik loknum. Arsenal.com Enska knattspyrnufélagið Arsenal mun leika í hvítum búningum er liðið mætir Nottingham Forest í FA bikarnum á sunnudaginn til að berjast gegn hnífaárásum meðal ungmenna í London.
Á seinasta ári voru 27 ungmenni stungin til bana í London, og morðtíðni meðal táninga í höfuðborginni var sú hæsta síðan árið 2008, þrátt fyrir útgöngubann um allt landið. Herferðin ber nafnið „No More Red,“ eða ekki meira rautt, og með henni er vonast til að veita ungu fólki fleiri örugg og jákvæð svæði. Búningarnir sem Arsenal munu leika í verða alveg hvítir, meira að segja auglýsingarnar og merki liðsins á búningnum, en þeir munu þó ekki fara í almenna sölu, heldur verða þeir gefnir samtökum sem vinna í þágu samfélagsins. Arsenal leikur í búningum frá Adidas, en liðið hefur fullan stuðning íþróttavörumerkjarisans, sem og leikarans Idris Elba og fyrrum leikmanns liðsins, Ian Wright. „Við megum aldrei sætta okkur við það að tapa lífi ungrar manneskju vegna ofbeldis og líta á það sem venjulegan hlut í borginni okkar,“ sagði Wright. „Það er virkilega mikilvægt að við vinnum öll saman í því að búa til betra umhverfi fyrir unga fólkið okkar.“
Enski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira