Pálmasunnudagur Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 10. apríl 2022 05:01 Innreið Krists í Jerúsalem á baki asna eins og hún er sýnd í Guðspjöllunum í Rossano á Ítalíu. wikimedia commons Pálmasunnudag ber upp viku fyrir páskadag ár hvert og markar jafnframt upphaf dymbilviku.
Hann er haldinn til minningar um innreið Jesú í Jerúsalem. Sagt er frá þeim atburði í Jóhannesarguðspjalli 12;12-16: „Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði: „Hósanna! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, konungur Ísraels!“ Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er: Óttast ekki, dóttir Síon. Konungur þinn kemur og ríður ösnufola. Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu en þegar Jesús var dýrlegur orðinn minntust þeir þess að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gert þetta fyrir hann.“ Ekki er hlaupið að því að sjá út hvaða dag pálmasunnudagur ber upp á, en hann miðast við páskadag. Páskadagur hefur svo allt frá árinu 325 ætíð borið upp á fyrsta sunnudag eftir fyrsta fulla tungl eftir jafndægri á vori. Dymbilvikan dregur nafn sitt af áhaldinu dymbill, sem notað var í kaþólskum sið til að hljóðið yrði drungalegra og sorglegra þegar hringt var til guðsþjónustu á þessum síðustu dögum föstunnar. Pálmasunnudagur er ekki skilgreindur sérstaklega sem frídagur hérlendis ólíkt öðrum hátíðisdögum yfir páskana.
Páskar Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira