Egill Einarsson segir tóma dellu að hann sé sóttvarnadólgur Jakob Bjarnar skrifar 30. desember 2021 13:04 Egill ásamt eiginkonu sinni Guðríði Jónsdóttur. Hann nýtur lífsins á Tenerife, lætur ekki smávægilegan misskilning í íslenskum fjölmiðlum trufla sig um of og hlakkar til mikillar áramótaveislu sem til stendur að halda á morgun. aðsend Egill Einarsson, fjölmiðlamaður og líkamsræktarþjálfari, er staddur úti á Tenerife í góðu yfirlæti. Umdeild frásögn hans á Instagram í gær rataði víða og hún höfð til marks um að Egill væri að hæðast að sóttvörnum. Hann segir ekkert fjær sanni.
Færslan rataði í ýmsa fjölmiðla þar sem lagt var út af henni sem svo að Egill væri að stæra sig af sóttvarnarbrotum. En hann birti myndir af borðhaldi þar sem tíu manns sátu saman við borð en samkvæmt sóttvarnarreglum mega ekki fleiri en sex koma saman. Og tekið var fram að Egill hafi sett myllumerkið #zerofucks við og það haft til marks um að hann væri að gefa sóttvörnum fingurinn. Myndin sem misskilningnum olli og slegið var upp í fjölmörgum fjölmiðlum. Hún birtist í svokölluðu story á Instagram-reikningi Egils.skjáskot Vísir náði tali af Agli nú í morgun, þar sem hann var í góðu yfirlæti á Tenerife og honum finnst sérkennilegt að fólk hafi ákveðið að misskilja sig. Og í raun furðulegt að einhverjir fjölmiðlar hafi kosið að slá þeim misskilningi upp. „Ég var ekki að meina að við værum að gefa skít í sóttvarnir, ótrúlegt að snúa því þannig heldur að hér á Tenerife sé ekki lagt mikið uppúr þessum reglum. Við hópurinn erum ekki að gefa zerofuck, heldur er Tene gefur zerofuck.“ Þórólfur má sprauta Egil eins oft og honum sýnist Þá sé það svo að hópurinn situr í raun við tvö borð sem hafði verið rennt saman þannig að strangt til tekið var ekki verið að brjóta neinar reglur. Agli þykir þetta leitt, að því sé snúið upp á sig að vera einhver sóttvarnaslúbbert og storkandi dólgur í þeim efnum. „Við öll í þessum hópi erum fullbólusett. Ef Þórólfur myndi bóka mig í sprautu númer 20 myndi ég mæta í hana. Þórólfur má sprauta mig eins oft og hann vill. Við erum að fylgja öllum reglum hérna. Göngum inn á staðinn með grímu, setjumst og tökum hana af andlitinu.“ Jafnvel að spá í að flytja til Tenerife Egill, sem nú er í þriðja skipti á þessu ári á Tenerife, lætur vel af sér. Segist elska Tene og sé jafnvel að spá í að gera eins og Sigvaldi Kaldalóns, sem Egill kallar King Svala, og flytja á staðinn. „Hér eru nú 26 gráður og ég er góður. Við erum hérna risahópur. Ég er með báða gríslingana og Gurry [eiginkona Egils], Rikki G. [sjónvarpsmaður] er með sína gríslinga, Kolbarinn [Ásgeir Kolbeinsson veitingamaður] með gríslingana sína, og fleiri á leiðinni.“ Fjöldi Íslendinga dvelur á Tenerife nú um stundir. Egill er í allstórum vinahópi og með í för er félagi hans Rikki G.aðsend Egill segist hafa lesið sig til um það áður en hann fór í þessa áramótaferð að ástandið á Tenerife væri voðalegt en annað hafi komið á daginn. Staðan sé síst verri en hún var í september og þarna sé fólk ekki eins upptekið af Covid-19 og raunin er á Íslandi. Mikið áramótapartí fyrirhugað Mörg þúsund Íslendinga eru nú stödd á Tenerife. Að sögn Egils segir Svali fararstjóri að meta megi það svo að þar séu nú fimm þúsund Íslendingar en sjálfur sé hann sérfræðingur og telji töluna nær sjö þúsund. „Mér líður eins og við séum eina þjóðin hérna.“ Á morgun, gamlársdag og gamlársdagskvöld, verður svo slegið upp alvöru veislu, að sögn Egils. „King Svali er búinn að leggja upp svakalegt áramótapartí. Steik, rautt, skaupið á risaskjá og svo Pétur Jóhann með uppistand. En sá maður er ekkert eðlilega fyndinn.“
Fjölmiðlar Samkomubann á Íslandi Spánn Íslendingar erlendis Jól Áramót Áramótaskaupið Tengdar fréttir Steindi með Covid og jólabingói Blökastsins frestað Nokkrir liðsmenn Blökastsins og framleiðsluteymisins á bak við að hafa greinst smitaðir af Covid-19. Auðunn Blöndal segir stöðuna leiðinlega en lofar enn betra bingói þegar nýtt ár gengur í garð. 28. desember 2021 14:06 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Steindi með Covid og jólabingói Blökastsins frestað Nokkrir liðsmenn Blökastsins og framleiðsluteymisins á bak við að hafa greinst smitaðir af Covid-19. Auðunn Blöndal segir stöðuna leiðinlega en lofar enn betra bingói þegar nýtt ár gengur í garð. 28. desember 2021 14:06