Lífið

Íris býður hundrað þúsund krónur í fundarlaun fyrir hring föður síns

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Skartgripahönnuðurinn Íris Björk Tanya glataði hring föður síns heitins fyrir nokkrum vikum og býður nú fundarlaun fyrir hringinn ef hann finnst. 
Skartgripahönnuðurinn Íris Björk Tanya glataði hring föður síns heitins fyrir nokkrum vikum og býður nú fundarlaun fyrir hringinn ef hann finnst. 

„Þetta er hringur pabba míns heitins og það eru sirka þrjár vikur síðan ég uppgötvaði að hann væri týndur,“ segir Íris Björk Tanya í samtali við Vísi. 

Athafnakonan og skartgripahönnuðurinn Íris Björk Tanya auglýsir eftir hring föður síns heitins á Facebook síðu sinni. Hún biðlar til fólks að skila honum ef hann finnst. 

„Þetta eru mikil tilfinningaleg verðmæti fyrir mig og ég býð því hundrað þúsund króna fundarlaun ef hringurinn finnst.“

Íris segist hafa glatað hringnum fyrir þremur vikum síðan á höfuðborgarsvæðinu. 

„Hann hefur líklega glatast einhversttaðar á milli Skútuvogs og RÚV svæðisins en þetta er svona chunky hringur með burgundy rauðum stein.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.