Lífið

Starfs­menn Secu­ritas gæta stærsta vinningsins í sögu HHÍ

Atli Ísleifsson skrifar
Potturinn er ellefufaldur, hefur aldrei verið stærri, og mun ganga út á föstudaginn.
Potturinn er ellefufaldur, hefur aldrei verið stærri, og mun ganga út á föstudaginn. Vísir/Vilhelm

Tveir starfsmenn Securitas gæta nú 110 milljóna króna í Kringlunni, en um er að ræða stærsta vinninginn í sögu Happdrætti Háskóla Íslands sem er þar til sýnis.

HHÍ hefur upphæð vinningsins til sýnis í sérsmíðuðu öryggisboxi fram á fimmtudag, en vinningurinn verður dreginn út á föstudag.

Í tilkynningu er haft eftir Úlfar Gauta Haraldsson hjá HHÍ að potturinn nú sé sá langstærsti í tæplega níutíu ára sögu happdrættisins. Sé hann ellefufaldur, en samkvæmt reglum happdrættisins verður að greiða Milljónaveltuna út í síðasta útdrætti ársins. 

Því er ljóst að einn miðaeigandi er öruggur með að hreppa stóra vinninginn.

HHÍ





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.