Lífið

Landabruggið á Ísólfsskála breytti örlögum Guðbergs

Kristján Már Unnarsson skrifar
Guðbergur Bergsson rithöfundur er fæddur á Ísólfsskála árið 1932.
Guðbergur Bergsson rithöfundur er fæddur á Ísólfsskála árið 1932. Egill Aðalsteinsson

Uppræting bruggverksmiðju í helli við Ísólfsskála á fjórða áratugnum varð til þess að foreldrar Guðbergs Bergssonar rithöfundar ákváðu að flytja þaðan þegar Guðbergur var þriggja ára. Hann ólst því upp í Grindavík en ekki sem bóndasonur á Ísólfsskála, þar sem hann er fæddur.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 segir Guðbergur frá leyndarmáli, sem Ísólfsskálaættin hefur lítið talað um; þegar upp komst um landabruggið, en málið þótti mikil hneisa.

„Mamma sko, - þau voru siðavönd þannig að þau gátu ekki verið hér eftir þetta,“ segir Guðbergur.

Gömul mynd frá Ísólfsskála.Landeigendur Ísólfsskála

Hann lýsir því þegar Björn Blöndal Jónsson, löggæslumaður ríkisins í áfengismálum, afhjúpaði bruggstarfsemina.

„Þar sem bændurnir brugga í friði, meðan Blöndal er suður með sjó,“ sagði í vísu sem fleyg varð á þessum árum og Guðbergur vitnar í.

„Eigum við núna að leka?“ spyr Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, formaður Landeigendafélags Ísólfsskála, spurð um bruggmálið.

„Það voru seldir lekar hérna,“ segir Ársæll Ármannsson og hlær.

Frændsystkinin Guðrún Björk Guðsteinsdóttir og Ársæll Ármannsson eru bæði í hópi eigenda Ísólfsskála.Egill Aðalsteinsson

„Ég held að það hafi nú ekki verið stór búskapur á því,“ bætir Ársæll við.

Bróðir Guðbergs fékk hins vegar viðurnefnið „Bjarni brúsi“, að sögn Guðbergs, ekki vegna þess að hann var að brugga heldur vegna þess að hann sá svo eftir brúsunum sem yfirvöld hjuggu gat á.

Hér má sjá níu mínútna myndskeið úr þættinum:

Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta séð þáttinn á efnisveitu Stöðvar 2. Hér má sjá kynningarstiklu:


Tengdar fréttir

Mergjaðar sögur Guðbergs frá æskuárum á Ísólfsskála

Guðbergur Bergsson rithöfundur hafði enga trú á því í sumar að hraunrennslið frá eldstöðinni í Geldingadölum myndi fara yfir Ísólfsskála. Fremur en að fjalla um eyðingu jarðarinnar kaus Guðbergur að segja okkur mergjaðar sögur frá æskuheimili sínu.

Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig

Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.