1819 Torgið - lúxus upplifun í afsláttum 1819 Torgið 10. nóvember 2021 08:50 Vaktaðu afslætti nálægt þér með 1819 Torginu
1819 Torgið er splunkunýtt app sem veitir afslætti og tilboð í yfir tvö hundruð vöruflokkum frá fjölda ólíkra fyrirtækja. Appið er ókeypis og geta allir sótt það á Google Play og App Store. Notandinn getur stillt appið eftir eigin áhugasviði eftir að hann hefur skráð sig inn og vaktað afslætti og tilboð í ákveðnum flokkum. Franz Gunnarsson, sviðsstjóri 1819 Torgsins segir appið einstakt í Íslandi. Franz Gunnarsson sviðsstjóri 1819 Torgsins. „Það er ekkert annað app í boði þar sem notandanum býðst svo fjölbreytt þjónusta ókeypis, beint í símann sem hann getur sniðið að eigin þörfum. Notandinn getur til dæmis merkt við flokkana Matur & veitingar, Heimilið eða Heilsa og fær þá tilkynningu í símann þegar slíkir staðir eru með tilboð. Þá er Íslandskort inni í 1819 Torginu svo notandinn sér hvar í nágrenni við hann eru tilboð í gangi. Það er nýjung sem býðst ekki annarsstaðar á þessu kalíberi,“ segir Franz. Fyrirtæki bjóða ýmist afslátt eða sérstök tilboð inni á appinu. Viðmótið er afar notendavænt, viðskiptavinurinn sér myndir af viðkomandi vöru eða þjónustu sem boðin er ásamt upplýsingum um hversu lengi tilboðið stendur. Ætli hann að nýta sér tilboðið leiðir appið hann áfram til að virkja afsláttinn. „Það getur verið mismunandi hvernig fyrirtæki setja sín tilboð fram og hvernig viðskiptavinurinn á að nálgast þau. Verslun eða þjónustuaðili getur til dæmis virkjað afslátt við kassann þegar greitt er og sé um tilboð í vefverslun að ræða leiðir appið viðskiptavini inn á vefsíðuna,“ útskýrir Franz. Þá er eitt markmið 1819 Torgsins að safna saman gjafakortum á einn stað. „Hingað til hefur fólk þurft að hafa samband við fyrirtæki eða fara inn á heimasíðu þess til að athuga hvort þau selji gjafabréf. Appið styttir þessa boðleið.“ Sérsvæði eru inni á 1819 torginu sem ákveðnir hópar hafa aðgang að. „Mörg stéttarfélög, starfmannafélög og nemendafélög eru með umsamin afsláttarkjör fyrir sitt félagsfólk hjá ýmsum fyrirtækjum. Þessa afslætti hafa félagsmenn yfirleitt þurft að leita uppi inni á heimasíðum félagasamtakanna eða ganga með félagsskírteini á sér til að geta nýtt þá. Við erum að færa þetta fyrirkomulag inn í nútímann. Viðkomandi félag fær sérsvæði í appinu sem er eingöngu opið þeirra félagsfólki og þar inni eru þeir afslættir sem standa félagsmönnum til boða. VR er þegar komið inn í appið með þessa þjónustu,“ útskýrir Franz. Hér má sækja appið frítt 1819 Torgið.
Mest lesið Krabbamein á vinnustöðum: „Ekki segja; þú veist að ég er til staðar“ Atvinnulíf Færa Jarðböðin í nýtt hús og nýjan búning Viðskipti innlent Heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Allt bendir til kólnunar og nefndin mun mildari Viðskipti innlent Eðalfiskur í Borgarnesi skiptir um nafn Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja vaxtaákvörðunina Viðskipti innlent Virði gulls í methæðum Viðskipti erlent Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri félags í eigu Íslendinga dæmdur fyrir fjárdrátt Viðskipti erlent Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ Samstarf Fleiri fréttir Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira