Meira en þúsund dagar síðan heimalið fagnaði sigri í leikjum KR og Njarðvíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2021 15:16 Maciek Stanislav Baginski hefur oft spilað vel með Njarðvík á móti KR. Vísir/Bára Dröfn Í kvöld fer fram leikurinn í úrvalsdeild karla í körfubolta þar sem heimaliðinu virðist hreinlega vera fyrirmunað að vinna. KR tekur þá á móti Njarðvík í fjórðu umferð Subway-deildar karla og nú er spurning hvort liðin brjóti þessa hefð síðustu ára. Það eru nefnilega liðnir 1085 dagar síðan að heimaliðið fagnaði sigri í innbyrðis leik KR og Njarðvík í úrvalsdeild karla. Síðasti heimasigurinn í leikjum þessara liða var 9. nóvember 2018 þegar Njarðvíkingar unnu glæsilegan sigur í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar unnu leikinn 85-67 í Njarðvík þar sem Mario Matasovic skoraði 24 stig og Maciek Stanislav Baginski var með 17 stig. Julian Boyd skoraði 25 stig fyrir KR í þeim leik en Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur íslensku leikmannanna með 10 stig. Björn Kristjánsson er eini leikmaður KR sem var í þeim leik og er enn að spila. Útiliðið hefur unnið fimm síðustu leikina þegar liðin hafa mæst þar af hafa Njarðvíkingar unnið þrjá síðustu leiki sína í Vesturbænum. KR tókst síðast að vinna Njarðvík á heimavelli í úrslitakeppninni vorið 2018 en síðasti heimasigur Vesturbæinga á móti Njarðvík í deildinni var 22. mars 2018. Leikur KR og Njarðvíkur hefst klukkan 20.15 í kvöld og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Strax á eftir mun Subway-Körfuboltakvöld gera upp alla fjórðu umferðina á sömu stöð. Síðustu sex innbyrðis leikir KR og Njarðvíkur: 4. mars 2021: KR vann 4 stiga útisigur í Ljónagryfjunni (81-77) 1. október 2020: Njarðvík vann 12 stiga útisigur í DHL-höllinni (92-80) 1. mars 2020: KR vann 6 stiga útisigur í Ljónagryfjunni (87-81) 21. nóvember 2019: Njarðvík vann 3 stiga útisigur í DHL-höllinni (78-75) 4. febrúar 2019: Njarðvík vann 16 stiga útisigur í DHL-höllinni (71-55) 9. nóvember 2018: Njarðvík vann 18 stiga heimasigur í Ljónagryfjunni (85-67) Subway-deild karla KR UMF Njarðvík Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira
KR tekur þá á móti Njarðvík í fjórðu umferð Subway-deildar karla og nú er spurning hvort liðin brjóti þessa hefð síðustu ára. Það eru nefnilega liðnir 1085 dagar síðan að heimaliðið fagnaði sigri í innbyrðis leik KR og Njarðvík í úrvalsdeild karla. Síðasti heimasigurinn í leikjum þessara liða var 9. nóvember 2018 þegar Njarðvíkingar unnu glæsilegan sigur í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar unnu leikinn 85-67 í Njarðvík þar sem Mario Matasovic skoraði 24 stig og Maciek Stanislav Baginski var með 17 stig. Julian Boyd skoraði 25 stig fyrir KR í þeim leik en Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur íslensku leikmannanna með 10 stig. Björn Kristjánsson er eini leikmaður KR sem var í þeim leik og er enn að spila. Útiliðið hefur unnið fimm síðustu leikina þegar liðin hafa mæst þar af hafa Njarðvíkingar unnið þrjá síðustu leiki sína í Vesturbænum. KR tókst síðast að vinna Njarðvík á heimavelli í úrslitakeppninni vorið 2018 en síðasti heimasigur Vesturbæinga á móti Njarðvík í deildinni var 22. mars 2018. Leikur KR og Njarðvíkur hefst klukkan 20.15 í kvöld og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Strax á eftir mun Subway-Körfuboltakvöld gera upp alla fjórðu umferðina á sömu stöð. Síðustu sex innbyrðis leikir KR og Njarðvíkur: 4. mars 2021: KR vann 4 stiga útisigur í Ljónagryfjunni (81-77) 1. október 2020: Njarðvík vann 12 stiga útisigur í DHL-höllinni (92-80) 1. mars 2020: KR vann 6 stiga útisigur í Ljónagryfjunni (87-81) 21. nóvember 2019: Njarðvík vann 3 stiga útisigur í DHL-höllinni (78-75) 4. febrúar 2019: Njarðvík vann 16 stiga útisigur í DHL-höllinni (71-55) 9. nóvember 2018: Njarðvík vann 18 stiga heimasigur í Ljónagryfjunni (85-67)
Síðustu sex innbyrðis leikir KR og Njarðvíkur: 4. mars 2021: KR vann 4 stiga útisigur í Ljónagryfjunni (81-77) 1. október 2020: Njarðvík vann 12 stiga útisigur í DHL-höllinni (92-80) 1. mars 2020: KR vann 6 stiga útisigur í Ljónagryfjunni (87-81) 21. nóvember 2019: Njarðvík vann 3 stiga útisigur í DHL-höllinni (78-75) 4. febrúar 2019: Njarðvík vann 16 stiga útisigur í DHL-höllinni (71-55) 9. nóvember 2018: Njarðvík vann 18 stiga heimasigur í Ljónagryfjunni (85-67)
Subway-deild karla KR UMF Njarðvík Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira