Krabbamein og allt sem því fylgir algjör hlandfata Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 29. október 2021 17:31 Hjörleifur Stefánsson er einn þeirra sem kemur fram á strákastund Krafts í næstu viku. Kona hans berst við krabbamein og talaði hún á kröftugu kvennastundinni í Hörpu í síðustu viku. Aðsent Fimmtudagskvöldið, 4 nóvember, heldur Kraftur Kraftmikla strákastund á Kexinu. Markmiðið með stundinni er að karlmenn sem hafa verið snertir af krabbameini hvort sem þeir hafa greinst með krabbamein eða eru makar, synir, feður, afar, vinir eða jafnvel samstarfsaðilar hittist, deili reynslu sinni og heyri í öðrum jafningjum. „
Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni og snertir krabbamein fjöldann allan af aðstandendum þeirra. Það getur verið mjög gott að heyra í öðrum mönnum sem hafa reynsluna og heyra hvernig þeir hafa tæklað hlutina,“ segir í tilkynningu frá Krafti. Upplifði kergju og reiði Reynsluboltar munu koma og segja frá. Þar á meðal verða Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, sem mun segja frá sinni reynslu og sjokkinu við það að greinast tvisvar með æxli í bakinu. Pétur Helgason mun segja frá sinni reynslu en konan hans greindist með brjóstakrabbamein og hélt Pétur fyrst að hann myndi geta græjað allt saman en svo fóru að koma upp óþægilegar tilfinningar, kergja og reiði. Hjörleifur Stefánsson kemur einnig og segir frá sinni reynslu en hann kallar krabbameinið og tilfinningarnar sem hellast yfir mann, hlandfötuna. Anna Dröfn Sigurjónsdóttir konan hans hefur tvívegis greinst með brjóstakrabbamein og hafa þau talað tæpitungulaust um krabbameinið og það sem því fylgir við börnin sín og aðra undir #látumdælunaganga. Hún sagði sína sögu á dögunum í viðtali hér á Vísi. Fara áfram á hnefanum Arnar Sveinn Geirsson mun segja frá því hvernig hann gróf tilfinningar sínar eftir að hann missti mömmu sína úr krabbameini og hvaða áhrif það hefur haft á hann. Matti Osvald Stefánsson, heilsufræðingur og markþjálfi Ljóssins og Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Krabbameinsfélagsins, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund. „Við strákarnir erum svo vanir að fara í gegnum erfiða tíma á hnefanum og tölum ekki um hlutina. Það hins vegar kemur bara niður á okkur og fólkinu í kringum okkur seinna. Því er svo nauðsynlegt að hitta aðra í svipuðum sporum sem að skilja mann og því erum við nú að halda þessa strákastund í fyrsta sinn og vonum að sem flestir nýti sér þetta tækifæri,“ segir Matti. „Við mælum með að allir karlmenn komi á þessa flottu strákastund og taki með sér vin eða vandamenn því flestir geta speglað sig í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu. Það er ókeypis á viðburðinn en það þarf að skrá sig á hann.“ Skráning á viðburðinn fer fram HÉR.
Heilbrigðismál Tengdar fréttir Kröftugar konur veittu innblástur í Hörpu Kraftur hélt í gær Kröftuga kvennastund í Silfurbergi í Hörpu þar sem yfir 130 manns komu saman og fengu kraft og innblástur frá öðrum. Markmið kvennastundarinnar var að fá konur til að deila reynslu sinni, hvaða þær sækja sinn styrk, hvernig þær hafa tekist á við áskoranir í lífinu og gefa öðrum innblástur og kraft. 22. október 2021 14:31 Kröftug kvennastund í Hörpu í tilefni af Bleikum október Í tilefni af Bleikum október verður Kraftur með kröftuga kvennastund í Hörpu fimmtudaginn 21. október milli klukkan 17:00 og 19:30. 14. október 2021 17:01 Talar opinskátt um krabbameinið: „Það er ekkert annað í boði en að vera jákvæð“ „Ég ætla að tala um krabbamein út frá mannlegu hliðinni, jákvæðu viðhorfi og mikilvægi þess að vera opinská og segja frá,“ segir Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, sem heldur erindi á Kvennastund Krafts í Hörpu í dag. 21. október 2021 13:38 Segir lækna hafa hlegið að sér og sagt að hún væri of ung til að greinast með krabbamein Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með krabbamein aðeins 27 ára. Hún segir að læknar hafi hlegið að henni og sagt að hún væri allt of ung til að greinast með krabbamein þegar hún leitaði til þeirra vegna gruns um sjúkdóminn. Hún vill að auðveldara verði fyrir ungt fólk að leita til læknis. 23. október 2021 20:04 Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira
Kröftugar konur veittu innblástur í Hörpu Kraftur hélt í gær Kröftuga kvennastund í Silfurbergi í Hörpu þar sem yfir 130 manns komu saman og fengu kraft og innblástur frá öðrum. Markmið kvennastundarinnar var að fá konur til að deila reynslu sinni, hvaða þær sækja sinn styrk, hvernig þær hafa tekist á við áskoranir í lífinu og gefa öðrum innblástur og kraft. 22. október 2021 14:31
Kröftug kvennastund í Hörpu í tilefni af Bleikum október Í tilefni af Bleikum október verður Kraftur með kröftuga kvennastund í Hörpu fimmtudaginn 21. október milli klukkan 17:00 og 19:30. 14. október 2021 17:01
Talar opinskátt um krabbameinið: „Það er ekkert annað í boði en að vera jákvæð“ „Ég ætla að tala um krabbamein út frá mannlegu hliðinni, jákvæðu viðhorfi og mikilvægi þess að vera opinská og segja frá,“ segir Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, sem heldur erindi á Kvennastund Krafts í Hörpu í dag. 21. október 2021 13:38
Segir lækna hafa hlegið að sér og sagt að hún væri of ung til að greinast með krabbamein Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með krabbamein aðeins 27 ára. Hún segir að læknar hafi hlegið að henni og sagt að hún væri allt of ung til að greinast með krabbamein þegar hún leitaði til þeirra vegna gruns um sjúkdóminn. Hún vill að auðveldara verði fyrir ungt fólk að leita til læknis. 23. október 2021 20:04