Fæstir taka með sér verjur út á lífið Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 25. október 2021 20:00 Samkvæmt niðurstöðum úr könnun Makamála segjast aðeins 16% kvenna og 16% karla alltaf taka með sér verjur þegar farið er út á lífið. Getty Enginn veit hvar eða hvenær þú hittir einhvern sem heillar og blossarnir kvikna. Þráin tekur yfir og ástarævintýrið, já eða næturævintýrið, byrjar.
Flestir eru meðvitaðir um mikilvægi þess að nota verjur í kynlífi, þá sérstaklega þegar kemur að skyndikynnum eða þegar fólk er að byrja ástarsamband. Smokkurinn fer þar fremstur í fararbroddi, vörn bæði gegn kynsjúkdómum sem og getnaði. Á dögunum spurðu Makamál lesendur Vísis hvort að þeir tækju með sér verjur þegar haldið er út á djammið. Könnunin var kynjaskipt til að sjá hvort að einhver greinanlegur munur væri þar á svörum kynjanna. Svo virtist ekki vera og mátti vart sjá neinn mun á svörunum en yfir þrjú þúsund manns tóku þátt í könnuninni. Ef marka má niðurstöðurnar má sjá að langfæstir eru fyrirfram undirbúnir undir óvænt ástarævintýri eða einungis 16%. Um 50% svara því að taka aldrei með sér verjur út á lífið og um 20% yfirleitt ekki. Niðurstöður* KONUR: Já, alltaf - 16%Já, yfirleitt - 12%Nei, yfirleitt ekki - 19%Nei, aldrei - 53% KARLAR: Já, alltaf - 16%Já, yfirleitt - 15%Nei, yfirleitt ekki - 21%Nei, aldrei - 48% *Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.
Spurning vikunnar Ástin og lífið Kynlíf Mest lesið Um 86 prósent segjast nota kynlífstæki með maka Makamál Íslenskuperrinn Bragi örvar íslenska tungu með Gerði Makamál „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Nota þú og maki þinn kynlífstæki saman? Makamál „Varð skotin í honum um leið og ég hitti hann“ Makamál „Gæti skrifað bókaseríu um vandræðileg stefnumót“ Makamál Fyrsta blikið í opinni dagskrá í kvöld: Sendir mömmu sína á stefnumót Makamál „Ég er svakalega einhleyp en hef gift marga“ Makamál Mun aldrei líta á ástina sem sjálfsagða Makamál Bréfið: Nýtur þess að horfa á konu sína með öðrum karlmönnum Makamál