Segir umfjöllun Kveiks jaðra við áróður og varar fólk við að mæta í viðtal Eiður Þór Árnason skrifar 16. október 2021 21:19 Jón Ívar Einarsson gagnrýnir umfjöllun Kveiks sem birtist í fyrr í október. Samsett Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, sakar fréttaskýringaþáttinn Kveik um að hafa sýnt hlutdrægni í umfjöllun um gagnrýnendur sóttvarnaraðgerða og finnst framsetning þáttarins til þess fallin að kasta rýrð á málflutning sinn.
Hann hvetur fólk til að hugsa sig vel um áður en það fellst á að koma í viðtal í þættinum. Ritstjóri Kveiks gefur lítið fyrir gagnrýnina og segir að faglega hafi verið unnið að umfjölluninni. Rætt var við Jón Ívar í nýjasta þætti Kveiks sem birtist þann 5. október. Í innslaginu fjallaði fréttamaðurinn Arnhildur Hálfdánardóttir um fólk sem hefur haft uppi efasemdir um sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda og bólusetningu gegn Covid-19. Í aðsendri grein sem birtist á Vísi gagnrýnir Jón Ívar meðal annars hvernig hálftímalangt viðtal við hann hafi verið klippt niður í um 85 sekúndur. „Það gefur augaleið að þetta gefur Kveik fullkomið frelsi til að klippa viðtalið eins og best passar þeirri sögu sem þau vilja segja. Eftir að hafa farið í þetta viðtal og svo horft á þáttinn er ljóst að Kveikur var búinn að skrifa handritið að mestu fyrirfram og svo voru viðtöl viðmælenda klippt til eins og hentaði handritinu. Síðan voru fengnir álitsgjafar með réttar skoðanir og þeir klipptir inn í til að leiðrétta hina viðmælendurna,“ segir Jón Ívar. Innslagið unnið af heiðarleika Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks, segir eðlilegt að fólk sem taki þátt í samfélagsumræðu kalli eftir því að þeirra sjónarmið fái meiri rými í umræðunni. Hún hafnar því að ummæli Jóns Ívars hafi verið tekin úr samhengi og segir Arnhildi hafa sýnt sanngirni við vinnslu innslagsins. „Hún stóð fyllilega undir þeirri ábyrgð að koma til skila sjónarmiðum margra innan þessa fjölbreytta hóps sem hún var að fjalla um. Ég hef ekkert við hennar vinnubrögð að athuga og hún kom fram af fullkomnum heiðarleika og þátturinn eiginlega talar fyrir sig.“ Þóra bætir við að Arnhildur hafi sótt margskonar efni og handritið verið unnið upp úr því efni sem hún fékk. Um ellefu prósent landsmanna sem hafa náð tólf ára aldri hafa ekki þegið bólusetningu gegn Covid-19.Vísir/Vilhelm Jón Ívar segir að eðlilegra hafi verið að taka stutt og hnitmiðað viðtal um hans afstöðu. „Það hentaði samt ekki Kveik, því þau virtust hafa lítinn áhuga á að heyra mína hlið, heldur frekar að finna augnablik sem létu mína afstöðu líta illa út.“ Þá sakar hann Arnhildi um að hafa ítrekað reynt að koma sér úr jafnvægi í viðtalinu, meðal annars með því að spyrja hvers vegna hann hafi líkað við ummæli manns á Facebook sem vændi íslensk stjórnvöld um lygaáróður. Jón Ívar sagði þá að honum finnist stjórnvöld hafa misst trúverðugleika þar sem fólk tapi trausti þegar það segi ósatt. Hann sagðist þó ekki vilja ganga svo langt að saka stjórnvöld um lygaáróður. Umfjöllunin jaðri við áróður Í grein sinni gerir Jón Ívar jafnframt athugasemd við að hafa verið kynntur sem kvensjúkdómalæknir þar sem hann sé sömuleiðis með meistaragráðu í lýðheilsufræðum og skoðað sóttvarnamál mál út frá því. Hann bætir við að svo virðist sem Kveikur hafi ekki stundað rannsóknarblaðamennsku í þessu máli heldur „frekar misvísandi fréttaskýringar sem jaðri við áróður.“ Í Kveik var meðal annars rætt við fólk sem hefur mótmælt sóttvarnaaðgerðum og bólusetningum á Austurvelli.vísir Jón Ívar ráðleggur fólki sem fær boð um að koma í viðtal hjá Kveik að hugsa sig vel um. „Það er mögulegt að búið sé að skrifa handritið og það er mikilvægt að vita hvort þú sért í „góða“ liðinu eða „vonda“ liðinu. Ef þú ert í „vonda“ liðinu er sennilega ekki þess virði að taka þátt því Kveikur mun einungis birta þau brot úr viðtalinu sem hentar þeirra málflutningi og sennilega fá viðmælendur úr „góða“ liðinu til að „leiðrétta“ þín orð.“ Vill að viðtalið verði birt í heild sinni Jón Ívar skorar á Þóru að birta viðtalið við sinni í heild sinni inn á vef RÚV svo fólk geti borið það saman við hvernig það birtist í þættinum. Þóra segir viðmælendur sem komi í viðtal hjá fjölmiðlum geti ekki krafist þess að þau séu birt í heild sinni. Þar með sagt sé ekki búið að útiloka að Kveikur verði við kröfu Jóns Ívars. Það standi til að gefa út lengri útgáfur af vissum viðtölum á hlaðvarpsformi samhliða frumsýningu þátta í vetur en þó séu viðtöl almennt ekki birt í heild sinni á vefnum. „Við byggjum okkar starf á því að fólk treysti okkur fyrir vinnslunni á því sem fólk hefur fram að færa og það hefur bara gengið vel hingað til. Það er auðvitað leitt að heyra að honum finnist þetta en ég veit að það var unnið úr þessu viðtali inn í stóra umfjöllun þar sem margir koma fram að fullkomnum heiðarleika. Það var ekkert klippt úr samhengi eða dregnar einhverjar óeðlilegar ályktanir, bara fjarri því,“ segir Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Fjölmiðlar Tengdar fréttir Stundar Kveikur rannsóknarblaðamennsku? Því miður markast fréttaflutningur í dag m.a. af því hver heldur um pyngjuna hjá viðkomandi fjölmiðli. Kveikur er hins vegar framleiddur af Ríkissjónvarpinu og því bjóst ég við hlutleysi og vinnubrögðum í anda Bob Woodward. Sú var þó ekki raunin. 16. október 2021 18:00 Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Innlent „Hann hlýtur að leggja allt kapp á Reykjavík“ Innlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent „Dagur, enga frasapólitík hér“ Innlent Ákvörðun ráðherra megi ekki litast af almenningsáliti Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Brunaði af stað frá ölvunarpósti en var handtekinn við Hamraborg Innlent Margir keypt fleiri en einn vegna fordómafullrar umræðu Innlent Vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ Innlent Fleiri fréttir „Gramsaði í munum“ og ók síðan brott á stolnum bíl undir áhrifum Vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ „Dagur, enga frasapólitík hér“ Ákvörðun ráðherra megi ekki litast af almenningsáliti Húsæðis- og efnahagsmál brenna á ungu fólki „Hann hlýtur að leggja allt kapp á Reykjavík“ Margir keypt fleiri en einn vegna fordómafullrar umræðu Borgarstjórnarsigur lífsnauðsynlegur Sjálfstæðismönnum Brunaði af stað frá ölvunarpósti en var handtekinn við Hamraborg Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Þriggja stiga skjálfti í Öskju Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Píratar kjósa formann í lok mánaðar Reyndi að flýja lögreglu en endaði uppi á kanti Engin ástæða til að breyta neinu Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Brosið fer ekki af Hrunamönnum Eldur bak við innstungu reyndist minni háttar Hætta á fölsuðum megrunarlyfjum og leitað í ræturnar Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Sjá meira
Stundar Kveikur rannsóknarblaðamennsku? Því miður markast fréttaflutningur í dag m.a. af því hver heldur um pyngjuna hjá viðkomandi fjölmiðli. Kveikur er hins vegar framleiddur af Ríkissjónvarpinu og því bjóst ég við hlutleysi og vinnubrögðum í anda Bob Woodward. Sú var þó ekki raunin. 16. október 2021 18:00