Lífið

Stjörnulífið: Eddan, glamúr og glimmer

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Instagram

Samfélagsmiðlar iðuðu af lífi í liðinni viku og höfðu stjörnurnar ekki undan að sækja ýmiskonar viðburði eða fá verðlaun. 

Fegurðin

Fegurðarsamkeppnin Miss Universe Iceland var haldin  og bar Elísa Gróa Steinþórsdóttir sigur úr bítum og hlaut titilinn Miss World Iceland. 

Elísa hefur tekið fjórum sinnum þátt í Miss Universe Iceland en í heildina var þetta hennar sjöunda fegurðarsamkeppni, svo að hér fer kona með reynslu. 

Íris Freyja hlaut titilinn Miss Supranational Iceland en hún var í öðru sæti í keppninni og fer í aðra keppni sem ber nafn titilsins. 

„Velkomin í systralagið“ skrifar Manúela undir glæsilega mynd af sér með þeim Elísu og Írisi. 

Gleðigjafinn og uppistandarinn Eva Ruza var kynnir Miss Universe Iceland og fór að sjálfsögðu á kostum eins og alltaf. 

Fjölskyldan 

Fjölmiðlamaðurinn Frosti og konan hans Helga Gabríela nutu lífsins í sólinni með börnum sínum tveimur. 

„Lífið heldur áfram að blómstra,“ skrifar Frosti undir mynd af sér og syni sínum Mána. 

Eddan og verðlaunin

Þátturinn Steinda Con í umsjón Steinda Jr hreppti Edduverðlaunin fyrir sjónvarpsefni ársins.  Steindi lét fara vel um sig og fagnaði stoltur heima í sófa með styttuna í hönd. 

Tónlistarkonan Ragna Kjartansdóttir, eða Cell7 hlaut Edduverðlaunin ásamt Huldari Frey fyrir hljóð ársins. 

Þorvaldur Davíð Kristjánsson hlaut Edduverðlaunin í flokknum Leikari ársins í aukahlutverki. 

Ráðherrann fékk verðlaun fyrir besta leikna sjónvarpsefnið og fagnaði leikstjórinn Arnór Pálmi með Eddustyttuna í hönd. 

Sólin og sælan

Crossfit stjarnan Sara Sigmunds fagnaði afmæli sínu í gær og birti fallega mynd af sér. 

Söngkonan Sólborg glæsileg með ryksuguna að vopni í Þjóðleikhúsinu. 

Gyða Dröfn, áhrifavaldur og annar eigandi verslunarinnar Valhneta, sýndi hvernig á að taka blund við sundlaugina. 

Áhrifavaldurinn Móeiður glæsileg með kaffibolla í vetrarsólinni í Moskvu. 

Melkorka Ýr nýtur sín vel í Barcelona. 

Glimmerið glamúrinn og gleðin

Það eru fáir sem hafa tærnar þar sem Svala hefur hælana þegar kemur að pósum og almennum skvísulátum. 

Áhrifavaldurinn og sjónvarpsstjarnan Sunneva Einars glæsileg að vanda. 

Plötusnældan og fjölmiðlakonan Dóra Júlía skellti sér í sjósund. 

Glimmerið og glamúrinn

Skemmtistaðurinn Paplo Discobar opnaði aftur eftir endurbætur um helgina en staðurinn skemmdist mikið í bruna á síðasta ári. 

Söngkonan og discodívan Þórunn Antonía skemmti gestum Pablo þessa fyrstu helgi og eins og henni einni er lagið var glimmerið og glamúrinn hvergi fjarri. 

En fyrst þarf auðvitað að bursta. 

https://www.instagram.com/p/CUgVfRfIVeF/?utm_medium=copy_link&fbclid=IwAR39cATiXPoldhxHj0NzOyq0c3GT5eyZNcaXtI49SZaoMugrmuZCoYaBdbk

Söngkonan Gréta Karen Grétarsdóttir lét sig ekki vanta í glimmersprengjuna á Pablo um helgina og minntu þær stöllur einna helst á gesti skemmtistaðarins Studio 54 hér á árum áður. 

Arnar Péturs var í 1. sæti í fimm kílómetra hlaupi í Hjartadagshlaupinu sem fór fram um helgina. 

Tískan og næturlífið

Tískugyðjan og stílistinn Ellen Lofts tekur sig einstaklega vel út að virða voffann í miðbænum. 

Ljósmyndarinn Baldur Kristjáns myndar á Vestfjörðum. 

Ljósmyndarinn Saga Sig smekkleg og svöl að vanda klædd í svört jakkaföt. 

Helgi Ómars spókaði sig um á Hótel Selfoss um helgina. 

Eigendur Húrra Reykjavík og veitingastaðanna Flatey og Yusu, þeir Jón Davíð og Sindri, héldu genaralprufu á skemmtistaðnum AUTO um helgina. Dyrnar munu svo opna fyrir almenningi næsta föstudag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.