Bíó og sjónvarp

Leynilögga á leið á stærstu kvikmyndahátíð Englands

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Leynilögga verður frumsýnd hér á landi síðar á árinu.
Leynilögga verður frumsýnd hér á landi síðar á árinu. Leynilögga/Lilja Jónsdottir

Í dag var tilkynnt að Íslenska hasar- og gamanmyndin Leynilögga hafi verið valin til sýningar á stærstu kvikmyndahátíð Englands, BFI London Film Festival.

„Kvikmyndin verður ekki í vondum félagsskap en búist er við að stjörnur á borð við Denzel Washington, Tilda Swinton, Bill Murry, Kristen Stewart, Judi Dench, Idris Elba og fleiri verði viðstaddar hátíðina en kvikmyndir þeirra verða sýndar á hátíðinni ásamt hinni íslensku Leynilöggu,“ segir Lilja Ósk Snorradóttir framleiðandi hjá Pegasus.

Lilja Jónsdottir

Leynilögga var frumsýnd á Locarno kvikmyndahátíðinni í síðasta mánuði og hlaut mjög góðar viðtökur. 

BFI London Film Festival er með eldri kvikmyndahátíðum í heiminum. Nokkrar íslenskar kvikmyndir hafa verið sýndar á hátíðinni eins og Fúsi eftir Dag Kára, stuttmyndin Regnbogapartý eftir Evu Sigurðardóttur og Rökkur eftir Erling Óttar Thoroddsen. Hátíðin sem fer fram í byrjun október er vel sótt bæði af blaðamönnum, söluaðilum og áhorfendum. 

„Mikil spenna hefur verið að opna almennilega fyrir áhorfendur eftir Covid árið í fyrra svo búast má við góðri aðsókn í ár.“

Hér fyrir neðan má sjá stutta kitlu úr kvikmyndinni. 

Leikstjóri myndarinnar er Hannes Þór Halldórsson en hann er einnig handritshöfundur ásamt Nínu Petersen og Sverri Þór Sverrissyni en sagan sjálf er eftir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Hannes Þór.  Á meðal þeirra sem fara með hlutverk í myndinni eru Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Vivian Ólafsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson.


Tengdar fréttir

Frum­sýningar­gestir stóðu upp og klöppuðu fyrir Leyni­löggu

Kvikmyndin Leynilögga, eða Cop Secret eins og hún heitir á ensku, var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Locarno International Film Festical í kvöld. Uppselt var á sýninguna og svo virðist sem henni hafi verið vel tekið af áhorfendum, þar sem þeir stóðu upp og klöppuðu að sýningu lokinni.

Leynilögga fær lof erlendra blaðamanna

„Það er búið að vera mjög mikil dagskrá í dag í kringum myndina og Hannes leikstjóri er búinn að vera mjög upptekinn í viðtölum við blaðamenn,“ segir Lilja Ósk Snorradóttir í samtali við Vísi. 

Kvikmyndin Leynilögga keppir um Gyllta hlébarðann

Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti listrænn stjórnandi Locarno að kvikmyndin Leynilögga hafi verið valin á hátíðina. Kvikmyndin keppir þar í aðalkeppni hátíðarinnar sem nefnist Concorso internacionale þar sem keppt er um Gyllta hlébarðann eða Pardo d‘Oro, ein virtustu kvikmyndaverðlaun sem veitt eru ár hvert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.