Pétur Júníusson tekur skóna af hillunni og slaginn með Víkingum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2021 16:01 Pétur Júníusson mætir aftur í Olís-deildina í vetur. vísir/vilhelm Nýliðar Víkings í Olís-deild karla í handbolta hafa samið við tvo leikmenn, þá Pétur Júníusson og Andra Dag Ófeigsson. Pétur tekur skóna af hillunni eftir þriggja ára hlé en hann hætti í handbolta vegna erfiðra og þrálátra meiðsla 2018. Hann var í lykilhlutverki í liði Aftureldingar sem fór í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn 2015 og 2016 og var viðloðandi íslenska landsliðið um tíma. Pétur var afar lofandi línumaður, öflugur í vörn og sókn, vakti athygli erlendra félaga. Andri er Frammari að upplagi en var í herbúðum Selfoss á síðasta tímabili. Hann lék aðallega með ungmennafélagi Selfoss í Grill 66 deildinni og skoraði þar 69 mörk í sextán leikjum. Víkingar tóku sæti Kríumanna í Olís-deildinni eftir að þeir gáfu það frá sér vegna aðstöðuleysis. Víkingur endaði í 2. sæti Grill 66 deildarinnar á síðasta tímabili og tapaði fyrir Kríu í úrslitum umspils um sæti í Olís-deildinni. Víkingur lék síðast í Olís-deildinni tímabilið 2017-18 en þá tók liðið sæti KR sem gaf það frá sér. Víkingur endaði í tólfta og neðsta sæti Olís-deildarinnar og féll. Fyrsti leikur Víkings í Olís-deildinni er gegn ÍBV á heimavelli 16. september.
Pétur tekur skóna af hillunni eftir þriggja ára hlé en hann hætti í handbolta vegna erfiðra og þrálátra meiðsla 2018. Hann var í lykilhlutverki í liði Aftureldingar sem fór í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn 2015 og 2016 og var viðloðandi íslenska landsliðið um tíma. Pétur var afar lofandi línumaður, öflugur í vörn og sókn, vakti athygli erlendra félaga. Andri er Frammari að upplagi en var í herbúðum Selfoss á síðasta tímabili. Hann lék aðallega með ungmennafélagi Selfoss í Grill 66 deildinni og skoraði þar 69 mörk í sextán leikjum. Víkingar tóku sæti Kríumanna í Olís-deildinni eftir að þeir gáfu það frá sér vegna aðstöðuleysis. Víkingur endaði í 2. sæti Grill 66 deildarinnar á síðasta tímabili og tapaði fyrir Kríu í úrslitum umspils um sæti í Olís-deildinni. Víkingur lék síðast í Olís-deildinni tímabilið 2017-18 en þá tók liðið sæti KR sem gaf það frá sér. Víkingur endaði í tólfta og neðsta sæti Olís-deildarinnar og féll. Fyrsti leikur Víkings í Olís-deildinni er gegn ÍBV á heimavelli 16. september. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira