Tónlist

Nakta barnið á Nevermind vill tugi milljóna frá Nirvana

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Spencer Eden var aðeins fjögurra mánaða gamall þegar myndin var tekin.
Spencer Eden var aðeins fjögurra mánaða gamall þegar myndin var tekin. DGC

Bandaríkjamaðurinn Spencer Eden, sem helst er þekktur fyrir að vera nakta barnið á plötuumslagi meistarastykkis hljómsveitarinnar Nirvana, Nevermind, hefur krafið hljómsveitina um háar fjárhæðir. Hann segir myndina jafngilda barnaklámi.

Plötumslagið, sem sjá má hér að ofan, er eitt af þekktari plötuumslögum tónlistarsögunnar, en á því má sjá barnungan og naktan Eden í sundlaug, með augun á dollaraseðli sem kræktur er í öngul. Myndin var tekin árið 1991, sama ár og Nevermind kom út.

Variety greindi frá því í gær að Eden hafi lögsótt eftirlifandi meðlimi hljómsveitarinnar, þá Dave Grohl og Krist Novoselic auk Courtney Love, ekkju Kurt Cobain og fleiri sem tengjast hljómsveitinni, þar á meðal ljósmyndarann sem tók myndina frægu.

Plötuumslagið í heild sinni.Samir Hussein/Getty Images

Alls krefst Eden 150 þúsund dollara frá hverjum og einum sem nefndur er í lögsókninni, um 20 milljónir króna á haus.

Í frétt Variety segir að lögmaður Eden að myndin sé ígildi barnakláms. Sjá megi getnaðarlim Eden og þar sem gjaldmiðill sé einnig í mynd megi líta svo á að barnið á myndinni starfi í kynlífsiðnaði (e. sex worker).

Tekið er fram í frétt Variety að myndir sem sýni nakin ungabörn á ókynferðislegan hátt séu alla jafna ekki taldar sem barnaklám.

Eden heldur því einnig fram að hvorki hann né foreldrar hans hafi skrifað undir heimild til þess að Nirvana mætti nota myndina. Hann hefur áður sagt að eina greiðslan sem innt var af hendi vegna myndatökunnar hafi verið 200 dollara greiðsla til foreldra hans.

Fimm ár eru liðin frá því að Elden tók þátt í endurgerð ljósmyndarinnar frægu, þá 25 ára gamall. Var hann að vísu í sundbuxum við það tækifæri.

„Það er frekar töff en skrýtið að vera hluti af einhverju svo mikilvægu án þess að muna eftir því,“ sagði Eden við það tækifæri en hann var aðeins fjögurra mánaða þegar myndatakan fór fram.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.