Lífið

Barn Eminem kemur út sem kynsegin

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Eminem ættleiddi Stevie þegar hán var aðeins þriggja ára gamalt.
Eminem ættleiddi Stevie þegar hán var aðeins þriggja ára gamalt. Skjáskot/Getty/Axelle/Bauer-Griffin

Barn rapparans Eminem hefur nú komið út úr skápnum sem kynsegin og notast nú við nafnið Stevie. Eminem ættleiddi Stevie árið 2005 þegar hán var aðeins þriggja ára.

Hið 19 ára gamla Stevie Laine kom út fyrir fylgjendum sínum á TikTok á dögunum. Þar deildi hán myndbandi þar sem hán sýndi ferlið frá því hán kallaði sig Whitney og notaðist við fornafnið hún, tók svo upp fornafnið hán, breytti loks nafni sínu og kveðst nú notast við öll fornöfn.

Við myndskeiðið skrifar hán að hán muni vaxa og breytast alla ævi og kveðst vera sátt með sjálft sig. Þá notar Stevie myllumerki yfir kynsegin og tvíkynhneigð.

Stevie er yngsta barn rapparans. Líffræðileg móðir Stevie er fyrrverandi eiginkona Eminems, Kim Scott. Rapparinn á þrjú börn og þar af eru tvö ættleidd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.