Heitreykti laxinn selst upp í hverri viku Norðanfiskur 6. ágúst 2021 14:21 Heitreikti laxinn og bleikjan frá Norðanfiski eru frábær í útileguna og veiðiferðir. Íslendingar eru vitlausir í heitreyktan lax frá Norðanfiski svo tvöfalda þurfti framleiðsluna til að anna eftirspurn.
Íslendingar eru vitlausir í heitreyktan lax frá Norðanfiski svo tvöfalda þurfti framleiðsluna til að anna eftirspurn. „Heitreykti laxinn er tiltölulega nýr af nálinni hjá okkur og fór hægt af stað til að byrja með en í sumar varð algjör sprenging,“ segir Páll Jónsson sem sér um markaðsmál hjá Norðanfiski. Hamagangurinn hófst þegar Páll greip með sér pakka af heitreyktum laxi í gönguferð upp að eldgosinu í Geldingadölum, enda laxinn tilvalinn í nesti. Hann smellti mynd af laxinum með eldgosið og hraunið í baksýn og skellti inn á samfélagsmiðla. Myndin sem Páll tók í gönguferð að gosinu og fór á flug á samfélagsmiðlum. „Þar með fór hann á flug og vikuna eftir þurftum við að tvöfalda framleiðsluna,“ segir Páll. „Nú selst heitreykti laxinn upp í hverri viku í Bónus og eftir að stjörnukokkurinn Gordon Ramsey var staddur hér á landi fyrr í sumar og gerði tilraunir með að heitreykja sjálfur lax, kynti það enn frekar undir vinsældunum,“ segir Páll en Ramsey birti myndband af eldamennskunni á Tik tok. Páll segir reyndar ekkert skrítið að heitreykti laxinn sé svona vinsæll. Hann sé dýrindis matur sem nákvæmlega ekkert þurfi að hafa fyrir. Framleiðsluaðferðin gerir það að verkum að laxinn er tilbúinn á diskinn beint úr umbúðunum og þá sé hann líka bráðhollur. „Hann er kjörinn fyrir þá sem hugsa um heilsuna, stútfullur af Omega 3 fitusýrum og fellur undir ketó mataræði sem margir aðhyllast. Hann hentar líka frábærlega í útileguna, ferðalagið og veiðiferðina þar sem það má borða hann beint upp úr pakkanum. EInfalt, fljótlegt og svakalega gott. Við mælum með piparrótarsósunni okkar með laxinum en það er glæný sósa í sósulínuna okkar sem fæst öll í Bónus. Hún var sérstaklega hönnuð með heitreykta laxinn í huga,“ segir Páll. Heitreykti laxinn er kjörinn í útileguna þar sem hann er tilbúinn beint úr pakkanum. Við stóðumst ekki freistinguna og prófuðum heitreykta laxinn ofan á grillað brauð. Matreiðslan var sáraeinföld og fljótleg en útkoman var hreint frábær. Reykta bragðið af laxinum tryllti bragðlaukana og piparrótarsósan fullkomnaði réttinn. Hér fyrir neðan má finna skotheldar útfærslur af heitreyktum laxi: Heitreyktur lax á smjörsteiktu súrdeigsbrauði Heitreyktur lax Súrdeigsbrauð Smjör Piparrótarsósa Pennslið Súrdeigsbrauð með smjöri og grillið eða steikið á pönnu þar til brauðið hefur fengið gullbrúna áferð. Rífið heitreyktan lax yfir brauðið og toppið síðan með sælkera piparrótarsósu Norðanfisks. Einfaldur og frábær réttur í millimál eða forrétt og mun án alls vafa slá í gegn. Einfalt og ljúffengt laxasalat með heitreyktum laxi frá Norðanfiski 150g heitreyktur lax 1 egg 1/2 laukur 2 msk majónes Salt og pipar eftir smekk Laukurinn er saxaður smátt og eggið skorið í litla bita. Heitreykta laxinum og majónesi er síðan bætt við og allt er hrært saman. Kryddað með salt og pipar eftir smekk.
Matur Heilsa Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira