Loksins 20 gráðu hiti í Reykjavík? Jakob Bjarnar skrifar 28. júlí 2021 11:05 Loksins, loksins var ritað í frægum ritdómi. Og það má segja um veðráttuna í Reykjavík. Loksins horfir til betri tíðar þó varla verði það eins mikil viðvarandi brakandi blíða þau á austur- og norðurlandi hafa notið. vísir/vilhelm Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að nú séu kaflaskil í veðráttunni á Íslandi. Einmuna tíð hefur verið fyrir norðan og austan en höfuðborgarbúar fá nú loksins smjörþef af sumarveðri. „
Þeir hafa látið bíða eftir sér heldur betur þessir virkilega góðu sumardagar suðvestanlands. Reyndar ekki gerðar miklar kröfur ef út í það er farið. Hitinn hefur hæstur í sumar orðið18,3°C (29. júní) og einu sinni í júlí náð 18°C (10. júlí). Nú er hins vegar allt útlit fyrir að hitinn í Reykjavík gæti náð 20 stigunum á morgun og mögulega aftur á fimmtudag. NA-átt á hlýrri gerðinni og sólríkt að auki,“ segir Einar sem heldur úti sérstökum veðurvef sem hann kallar Blika. Ýmis met féllu Einar spáir því að hlýjast verði á morgun og þá jafnvel ekki fyrr en undir kvöld. Og þá gæti hitinn farið yfir 20 gráður. Fólk fyrir austan og norðan hafa brosað hringinn, reyndar hefur Vísir heyrt í fólki sem búsett er þar um slóðir sem er hreinlega orðið mett af góðviðri. Og þeir sem eru eldri en tvævetur vita að ef gott er veður á norðausturlandi þá eru líkur á að það sé leiðinlegt á suðvesturhorninu. Og hitinn á Akureyri hefur verið ótrúlega mikill eins og reyndar hefur komið fram í fréttum. Frá 1. til 24 júlí reiknast meðalhitinn rétt tæplega 15 stiga hiti. Einar Sveinbjörnsson. Regnhlífinni má breyta í sólhlíf. En á morgun gæti hitinn skotist yfir 20 gráður á höfuðborgarsvæðinu. „Þessi meðalhitatala er mjög há þó svo að mánuðurinn sé ekki liðinn. Það eru reyndar heldur svalari dagar í vændum í komandi viku og til mánaðarmóta. Ekki þó svo kalt, en hér er því spáð að meðalhitinn endi í 14,0 til 14,2°C, Verði sú raunin munu tvö mánaðarhitamet verða slegin,“ segir Einar. Þetta er hæsti meðalhiti veðurstöðvar í júlí. Fyrra metið viðurkennt er 13,7 gráðu hiti á Celsíus, frá Írafossi 1991. Og þá liggur yfir hæsti meðalhiti á Íslandi frá upphafi mælinga, að sögn Einars. En bendir jafnframt á að vafasöm tala, 14 gráðu hiti á Celsíus hafi reiknast á Vaðþjófsstöðum í Fljótsdal í ágúst 1880. Fínt veður sunnan og vestan til framundan En hverjar eru horfur fyrir ágúst? Einar fer yfir sviðið og segir sumarið kaflaskipt eins og allir vita. Fram til 22. júní var reyndar óvenju kalt á landinu með ríkjandi áttum að norðan og þær voru af þurru sortinni. Kortin eins og þau blasa við fyrir næstu daga.Blika „Frá 24. júní til 25. júlí brá heldur betur til betri tíðar heilt yfir. Ríkjandi SV-vindur og sérlega hlýtt á okkar mælikvarða norðan- og austanlands,“ segir Einar sem sjálfur elti veðrið og hefur að einhverju leyti haldið sig fyrir austan. „Einsleitt veðurlag í nánast 4-5 vikur og líka athyglisvert hversu þurrt var sunnan- og suðvestanlands.“ Og nú er komið að enn einum kaflaskiptunum. „Má segja að síðustu þrír dagar hafi verið dagar umbreytinginna. Langtímaspárnar eru nokkuð eindregnar fram í miðjan ágúst.“ Og hann hendir í spá: „Spáð er ríkjandi NA- og N-áttum. Fyrst í stað með hæðarsvæði vestur undan. Fínir og bjartir sumardagar sunnan- og vestan til, en svalara og að úrkomulaust að mestu þegar frá líður. Þegar um það bil vika verður af ágúst er spáð greinilegri lægðarbraut austur yfir Bretlandseyjar (Færeyjar) og V-Evrópu. Þar svalt og rigningarsamt. NA-átt og rignir líklega einnig austanlands. En áfram fremur þurrt í veðri sunnan og vestanlands.“ Spá fram í miðjan ágúst liggur nú fyrir.Blika
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira