Vilja að Hamilton hljóti harðari refsingu Valur Páll Eiríksson skrifar 27. júlí 2021 22:31 Hamilton fagnaði sigri á Silverstone eftir að hafa farið utan í Verstappen í byrjun kappakstursins. Formula 1/Formula 1 via Getty Images Lið Red Bull í Formúlu 1 kappakstrinum hefur krafist harðari refsingar á hendur heimsmeistaranum Lewis Hamilton eftir að honum lenti saman við Max Verstappen í í breska kappakstrinum þann 18. júlí. Verstappen féll úr keppni og endaði á sjúkrahúsi eftir áreksturinn.
Hamilton, sem keyrir fyrir Mercedes, er ríkjandi heimsmeistarari og hefur unnið titilinn sex af síðustu sjö árum. Yfirburðir Mercedes hafa verið miklir í samræmi við það en liðið hefur unnið keppni bílasmiðja síðustu sjö árin í röð. Hollendingurinn ungi Max Verstappen, sem keyrir fyrir Red Bull, hefur hins vegar veitt Hamilton mikla samkeppni í ár og er efstur í stigatöflu ökuþóra. Verstappen and Hamilton collide! The title rivals come together at Copse, pitching Verstappen into a high-speed crash. The Dutchman was able to walk away but he has been taken to hospital for precautionary checks#BritishGP #F1 pic.twitter.com/ol1s9dRJoa— Formula 1 (@F1) July 18, 2021 Umdeilt atvik varð strax í upphafi síðasta kappaksturs á Silverstone-brautinni á Bretlandi þar sem Hamilton fór utan í bíl Verstappen sem var að taka fram úr Bretanum, með þeim afleiðingum að Verstappen missti stjórn og þaut utan í öryggisvegg. Bíllinn gjöreyðilagðist og Verstappen lauk keppni auk þess að þurfa að fara á sjúkrahús vegna meiðsla af völdum árekstursins. Hamilton hlaut 10 sekúndna refsingu fyrir atvikið en kom til baka þar sem hann náði fram úr Charles Leclerc á Ferrari þegar tveir hringir voru eftir til að tryggja sér sigurinn. Hamilton hlaut 25 stig fyrir sigurinn og minnkaði bilið í Verstappen í keppni ökuþóra úr 32 stigum í aðeins átta stiga mun. Red Bull have lodged a "petition for review" with the FIA over Lewis Hamilton's 10-second penalty at Silverstone#F1 https://t.co/Fpifot6eDA— Formula 1 (@F1) July 27, 2021 Red Bull hefur áfrýjað dómi Formúlunnar og krefst harðari refsingar gegn Hamilton vegna slyssins. Liðin munu mæta fyrir nefnd á fimmtudag þar sem Red Bull þarf að færa fram ný gögn, sem ekki voru fyrir hendi þegar ákvörðun um fyrri refsingu var tekin, til að sýna fram á frekari sekt Hamiltons. Christian Horner, sem er yfir liði Red Bull, segir slysið hafa kostað liðið 1,8 milljónir bandaríkjadala, sem er meira en 1% af heildarfjármagni liðsins fyrir tímabilið.
Mest lesið Í beinni: Ísland - Frakkland | Ögurstund á glænýjum velli Fótbolti Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Enski boltinn Sá glitta í þá Söru Sigmunds sem við þekkjum svo vel Sport Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Enski boltinn Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Íslenski boltinn Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Enski boltinn Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið Íslenski boltinn Badmus á förum en Valur heldur íslenskum lykilmönnum Körfubolti Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Enski boltinn Leikurinn sem gæti leitt stelpurnar að HM í fyrsta sinn Fótbolti Fleiri fréttir Sakaður um viljandi árekstur: „Bara séð svona í leikjum og go-kart“ Piastri á ráspól Hamilton segir sögusagnir um ósætti vera þvaður Norris vann í Mónakó í fyrsta sinn Lando Norris hrifsaði til sín ráspólinn á elleftu stundu Verstappen tók fram úr á fyrsta hring og fagnaði sigri Hrikalegur árekstur Tsunoda, nýtt áfall fyrir Ferrari og Piastri fremstur Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Var í lífstíðarbanni en er nú aftur orðinn liðsstjóri í Formúlu 1 Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Sjá meira