Lífið

Íslenskir skór vekja heimsathygli en verða aldrei framleiddir

Snorri Másson skrifar
VENICE HEEL, fyrir komandi flóð.
VENICE HEEL, fyrir komandi flóð. Marinó Thorlacius

Alþjóðlegir þungavigtarmiðlar á borð við HYPEBEAST hafa að undanförnu gert nýstárlegum skófatnaði hönnuðarins Sruli Recht skil. Hönnuninni er ætlað að vera svar við loftslagsbreytingum; þrjár tegundir af skóm fyrir framtíð með áfallastreitu, eins og þar segir.

Fjallað er um Sruli Recht sem íslenskan hönnuð í erlendum miðlum. Segja má að hann sé búinn að vera Íslendingur frá 2005 þegar hann flutti hingað fyrst, en upprunalega er hann frá Ísrael, og ólst upp í Ástralíu. Hér hefur hann búið og starfað.

Skórnir sem um ræðir eru hver um sig viðbragð við ólíkum hamförum af völdum loftslagsbreytinga. Þannig á eitt par að koma að notum þegar flóð ríða yfir en annað par er svalandi ef hitabylgja skellur á.

Sérstaða skónna mun helst vera sú að ætlunin er ekki að hefja framleiðslu á þeim, heldur verða þeir seldir stafrænt með NFT-tækni, sem gerir listamönnum kleift að búa til einstök stafræn eintök af verkum sínum. Líkamleg eintök eru þó til, sem voru 3D-prentuð.

PHASE_CHANGE, skór fyrir næstu hitabylgju.Marinó Thorlacius
UN_BALANCED, skór fyrir eldra fólk sem óttast að missa jafnvægið.Marinó Thorlacius

Sruli Recht hefur komið víða við í íslensku listalífi á öldinni en undanfarin ár fyrst og fremst fengist við fatahönnun.

Sruli Recht á Reykjavík Fashion Festival árið 2011.Dario Cantatore/WireImage (via Getty Images)





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.