Lífið

Heiðrar minningu Þor­láks með því að hlaupa til styrktar Píeta

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Systkinin Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir og Þorlákur Ingi Sigmarsson.
Systkinin Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir og Þorlákur Ingi Sigmarsson. Aðsend

Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka til minningar um bróður sinn, Þorlák Inga Sigmarsson, sem féll fyrir eigin hendi í desember síðastliðinn, aðeins tuttugu og eins árs gamall. Öll áheiti munu renna óskipt til Píeta samtakanna, en Þorlákur hafði nýtt sér samtökin þó nokkrum sinnum áður en hann kvaddi.

„Þorlákur var búinn að vera glíma við miklar sjálfsvígshugsanir í mörg ár. Hann leitaði á mjög marga staði en Píeta samtökin voru svona það sem okkur fannst taka honum mest með opnum örmum. Hann leitaði þangað alveg í þó nokkur skipti og var hjá sálfræðingi sem heitir Biggi. Á þeim tíma sem hann leitaði til Píeta þá leið honum sem best,“ segir Þorbjörg.

„Hann var vinamargur og ótrúlega góðhjartaður,“ segir Þorbjörg um bróður sinn.Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir

„Píeta heldur svo vel utan um alla og er einhvern veginn í boði fyrir alla. Þú getur fengið ráðgjöf bara nánast innan við sólarhring. Það er ekki lokað á neinn eins og er svo oft. Fólk kemur oft bara að lokuðum dyrum.“

Þorbjörg og fjölskylda leituðu sjálf til Píeta eftir að Þorlákur dó, en samtökin þjónusta einnig aðstandendur þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi.

„Það reyndist okkur ótrúlega vel. Við töluðum við ráðgjafa sem heitir Benni. Við fórum öll til hans og það hjálpaði gríðarlega mikið og það er gott að tala við einhvern sem vinnur við þetta og getur gefið manni ráð og hlustað.“

Mikilvægt að þau geti boðið upp á fría ráðgjöf

Þau systkinin voru þrjú. Þorbjörg sem er tvítug er yngst og Þorlákur var tveimur árum eldri. Þá eiga þau eina eldri systir. 

Þær systur ætla að hlaupa tíu kílómetra í minningu um bróður sinn og rennur allur ágóði til samtakanna. Foreldrar þeirra ætla einnig að hlaupa í nafni Þorláks en til styrktar Sorgarmiðstöðinni. Faðir þeirra stefnir á að hlaupa heilt maraþon eða 42,2 kílómetra.

Þorbjörg segir söfnunina ganga vel. Markmið hennar er að safna 300 þúsund krónum en hún hefur nú þegar safnað rúmlega 140 þúsund krónum.

Hér má sjá systkinin saman. Þær systur ætla að heiðra minningu bróður síns með því að hlaupa tíu kílómetra í Liverpool treyju.Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir

„Ástæðan fyrir því að það er svo mikilvægt að styrkja þetta málefni er að ólíkt öllum úrræðum þá eru þau að bjóða upp á fría þjónustu sem er svo mikilvægt af því það hafa alls ekki allir efni á því að leita til sálfræðings af því það er svo dýrt. Þess vegna er svo mikilvægt að styrkja þetta málefni svo þau hafi pening til þess að bjóða upp á fría ráðgjöf.“

Þá vonast hún til þess að Píeta geti boðið upp á þjónustu á fleiri stöðum á landinu, en eins og er bjóða þau upp á þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.

Þorbjörg segist alls ekki vera nein hlaupakona, en þegar hún hafi séð Reykjavíkurmaraþonið auglýst fyrr á árinu hafi hún verið staðráðin í að hlaupa í minningu um bróður sinn. Þær systur eru byrjaðar að undirbúa sig fyrir hlaupið með reglulegum útihlaupum.

„Við byrjum hægt en förum síðan alltaf lengra og lengra. Núna erum við að hlaupa svona tvo til þrjá kílómetra.“

Tvö ár voru á milli Þorbjargar og Þorláks, en hann var aðeins tuttugu og eins árs gamall þegar hann féll fyrir eigin hendi.Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir

Þorlákur var góðhjartaður og vinamargur

Þorbjörg lýsir bróður sínum sem góðhjörtuðum og vinamörgum. En stór hópur af vinum Þorláks mun einnig hlaupa í hans minningu. Þá var hann mikill Liverpool aðdáandi og því munu allir hans aðstandendur hlaupa í Liverpool treyjum.

„Ég vonast innilega til þess að sjá sem flesta í Liverpool treyju að hlaupa til styrktar Píeta samtökunum.“

Hægt er að heita á Þorbjörgu og leggja söfnuninni lið með því að smella hér.

Fólki með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið. Nánari upplýsingar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.